{"id":1052,"date":"2020-03-16T11:43:48","date_gmt":"2020-03-16T11:43:48","guid":{"rendered":"http:\/\/hestamennska.is\/?p=1052"},"modified":"2021-02-26T15:42:38","modified_gmt":"2021-02-26T15:42:38","slug":"algengustu-mistokin-eru-ad-nota-of-long-mel","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hestamennska.is\/?p=1052","title":{"rendered":"Algengustu mist\u00f6kin eru a\u00f0 nota of l\u00f6ng m\u00e9l"},"content":{"rendered":"<p>L\u00edklegt er a\u00f0 flestir hestamenn hafi \u00e1 einhverjum t\u00edmapunkti, e\u00f0a jafnvel oft,\u00a0 sta\u00f0i\u00f0 frammi fyrir spurningunni um hva\u00f0a m\u00e9l \u00e6tli henti hestinum hans best? \u00deegar lei\u00f0in liggur svo \u00ed hestav\u00f6ruverslun til \u00feess a\u00f0 fj\u00e1rfesta \u00ed einu sl\u00edku blasir vi\u00f0 manni sannkalla\u00f0ur frumsk\u00f3gur af m\u00e9lum og valkv\u00ed\u00f0inn ver\u00f0ur enn meiri? Til \u00feess a\u00f0 f\u00e1 einhvern botn \u00ed m\u00e1li\u00f0 f\u00f3r <em>Hestamennska<\/em> \u00e1 fund vi\u00f0 Sonju L\u00edndal \u00de\u00f3risd\u00f3ttur d\u00fdral\u00e6kni og hestatannl\u00e6kni me\u00f0 meiru. Margar spurningar dundu \u00e1 Sonju sem snerust \u00fe\u00f3 fyrst og fremst um hva\u00f0a \u00e1hrif m\u00e9l hafi \u00e1 hesta, hvers vegna vi\u00f0 notum \u00feau, en einnig um beislab\u00fana\u00f0 og m\u00fala.<\/p>\n<h3>Munnur hestsins er ekki skapa\u00f0ur fyrir m\u00e9l<\/h3>\n<p>\u201e\u00c1\u00f0ur en ma\u00f0ur fer a\u00f0 hugsa um hva\u00f0a m\u00e9l passar hestinum \u00fearf ma\u00f0ur a\u00f0 vita hvort hann s\u00e9 heilbrig\u00f0ur \u00ed munninum,\u201c sag\u00f0i Sonja. \u201e\u00dea\u00f0 er a\u00f0alatri\u00f0i\u00f0 \u00fev\u00ed margir \u00fe\u00e6ttir spila inn \u00ed hvernig hesturinn er \u00ed beisli. Einnig \u00fearf a\u00f0 athuga hvort hann s\u00e9 almennt heilbrig\u00f0ur \u00ed skrokknum, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 hefur l\u00edka \u00e1hrif. Svo megum vi\u00f0 ekki gleyma \u00fev\u00ed a\u00f0 vandam\u00e1l \u00ed beisli eru oft tengd knapanum og taumh\u00f6ndinni.\u201c<\/p>\n<p>Sonja bendir \u00e1 a\u00f0 burts\u00e9\u00f0 fr\u00e1 heilbrig\u00f0i hestsins \u00feurfum vi\u00f0 a\u00f0 \u00e1tta okkur \u00e1 a\u00f0 munnur hestsins er ekki skapa\u00f0ur til \u00feess a\u00f0 hafa m\u00e9l uppi \u00ed s\u00e9r. \u00cd raun og veru s\u00e9 ekkert pl\u00e1ss fyrir m\u00e9l \u00fev\u00ed tungan fyllir upp \u00ed munnholi\u00f0. \u201eKerfi\u00f0 er \u00ed raun og veru fullt, en vi\u00f0 \u00e1kve\u00f0um a\u00f0 koma m\u00e9lum \u00fear fyrir,\u201c segir h\u00fan.<\/p>\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 er gott a\u00f0 velta fyrir s\u00e9r munninum. Til hvers er til d\u00e6mis tannlausa bili\u00f0? Er \u00fea\u00f0 til \u00feess a\u00f0 geta haft m\u00e9l uppi \u00ed hestinum? Nei, aldeilis ekki. \u00dat fr\u00e1 \u00fer\u00f3unars\u00f6gunni hefur tannlausa bili\u00f0 \u00fer\u00f3ast til \u00feess a\u00f0 hesturinn geti sp\u00fdtt \u00fat \u00far s\u00e9r steinum og \u00f6\u00f0ru h\u00f6r\u00f0u. \u00deeir sem g\u00e1tu gert \u00fea\u00f0 ey\u00f0il\u00f6g\u00f0u s\u00ed\u00f0ur \u00ed s\u00e9r jaxlana og voru \u00fev\u00ed betur \u00ed stakk b\u00fanir til a\u00f0 lifa af \u00fati \u00ed n\u00e1tt\u00farunni. \u00deetta er vi\u00f0brag\u00f0 sem vi\u00f0 notum \u00feegar vi\u00f0 erum a\u00f0 beisla hestana og f\u00e1 \u00fe\u00e1 til a\u00f0 opna munninn. \u00deegar eitthva\u00f0 hart kemur \u00e1 \u00feetta sv\u00e6\u00f0i byrja \u00feeir a\u00f0 opna munninn til \u00feess \u00ed rauninni a\u00f0 losa sig vi\u00f0 \u00feennan a\u00f0skotahlut.\u201c<\/p>\n<figure id=\"attachment_1279\" aria-describedby=\"caption-attachment-1279\" style=\"width: 300px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"wp-image-1279 size-medium\" src=\"https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2021\/02\/P1000094-300x211.jpg\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"211\" srcset=\"https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2021\/02\/P1000094-300x211.jpg 300w, https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2021\/02\/P1000094-768x541.jpg 768w, https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2021\/02\/P1000094-696x490.jpg 696w, https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2021\/02\/P1000094-597x420.jpg 597w, https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2021\/02\/P1000094-100x70.jpg 100w, https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2021\/02\/P1000094.jpg 1024w\" sizes=\"(max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/><figcaption id=\"caption-attachment-1279\" class=\"wp-caption-text\">Sonja L\u00edndal \u00de\u00f3risd\u00f3ttir \u00a9asdishar<\/figcaption><\/figure>\n<h3>Gefa \u00fearf hrossum n\u00e6gan t\u00edma til a\u00f0 l\u00e6ra a\u00f0 bera m\u00e9l<\/h3>\n<p>\u201eVi\u00f0 ver\u00f0um alltaf a\u00f0 hugsa um hva\u00f0 hesturinn gerir miki\u00f0 bara fyrir okkur sem er honum ekki e\u00f0lisl\u00e6gt,\u201c segir Sonja. \u201eVi\u00f0 \u00feurfum \u00fev\u00ed a\u00f0 kenna hestinum a\u00f0 bera m\u00e9lin r\u00e9tt og a\u00f0 vera r\u00f3legur og nota ekki \u00feetta vi\u00f0brag\u00f0 endalaust. \u00deessu \u00fearf a\u00f0 gefa g\u00f3\u00f0an t\u00edma \u00ed tamningunni. Ef hesturinn l\u00e6rir \u00fea\u00f0 ekki er hann alltaf \u00f3r\u00f3legur \u00ed munninum, er me\u00f0 tunguna \u00e1 mikilli hreyfingu. Hann \u00fearf a\u00f0 l\u00e6ra a\u00f0 halda \u00e1 m\u00e9lunum me\u00f0 loka\u00f0an munninn, en vera n\u00e6mur \u00feegar hann f\u00e6r \u00e1bendingu. Hestar eru mj\u00f6g misflj\u00f3tir a\u00f0 l\u00e6ra \u00feetta. Sumir eru flj\u00f3tari a\u00f0 s\u00e6tta sig vi\u00f0 \u00feetta en a\u00f0rir \u00feurfa mikla hj\u00e1lp.\u201c<\/p>\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 er svo margt sem \u00fearf a\u00f0 kenna hesti \u00ed byrjun tamningar,\u201c segir h\u00fan. \u201eHann \u00fearf a\u00f0 l\u00e6ra a\u00f0 umgangast manninn, teymast og bera hnakkinn og s\u00ed\u00f0an a\u00f0 bera knapann. \u00dea\u00f0 skiptir miklu m\u00e1li a\u00f0 geta kennt hestinum a\u00f0 bera knapann, fara \u00e1fram og stoppa \u00e1n \u00feess a\u00f0 vera me\u00f0 beisli me\u00f0 m\u00e9li \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 n\u00e6r\u00f0u a\u00f0 kenna honum eitt \u00ed einu. H\u00e6gt er a\u00f0 nota m\u00e9lalaust beisli en \u00fdmsar a\u00f0fer\u00f0ir eru til. \u00c9g held a\u00f0 vi\u00f0 s\u00e9um a\u00f0eins of flj\u00f3t a\u00f0 nota m\u00e9lin. Vi\u00f0 getum l\u00edka kennt eldri hestum a\u00f0 svara \u00e1bendingum \u00e1n m\u00e9la.<\/p>\n<p>\u00c9g hef s\u00e9\u00f0 fullor\u00f0na hesta sem tengja \u00e1bendingar me\u00f0 f\u00f3tum vi\u00f0 m\u00e9lin og byrja a\u00f0 dj\u00f6flast me\u00f0 \u00feau. \u00de\u00e1 hefur \u00feeim kannski veri\u00f0 kennt of margt \u00ed einu og \u00feeir byrja\u00f0 a\u00f0 tengja saman \u00f3l\u00edka hluti. Alla vega er mj\u00f6g mikilv\u00e6gt a\u00f0 r\u00ed\u00f0a \u00feeim \u00ed byrjun \u00e1 algj\u00f6rlega sl\u00f6kum taumum \u00e1n alls taumsambands, b\u00e6\u00f0i fyrir framhugsun og marga a\u00f0ra \u00fe\u00e6tti.\u00a0 Hrossin \u00feurfa a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 vera me\u00f0 slaka tauma og vera frj\u00e1ls me\u00f0 a\u00f0 nota h\u00e1lsinn sem jafnv\u00e6gisst\u00f6ng, enda n\u00f3gu mikil breyting fyrir hest a\u00f0 vera me\u00f0 knapa \u00e1 baki. \u00de\u00e1 er bara annar taumurinn nota\u00f0ur til a\u00f0 h\u00e6gja \u00e1. S\u00ed\u00f0an er h\u00e6gt a\u00f0 hafa m\u00e9l upp \u00ed \u00feeim en nota \u00feau ekki, bara til a\u00f0 leyfa \u00feeim a\u00f0 venjast \u00feeim h\u00e6gt og r\u00f3lega. \u00deau \u00feurfa a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 l\u00e6ra a\u00f0 bera m\u00e9lin og sam\u00feykkja \u00feennan a\u00f0skotahlut \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00feurfa strax a\u00f0 l\u00e6ra a\u00f0 hl\u00fd\u00f0a \u00feeim og stoppa og beygja og svo framvegis. Vi\u00f0 fl\u00fdtum okkur yfirleitt of miki\u00f0 \u00ed tamningunni.\u201c<\/p>\n<h3><\/h3>\n<h3>\u201eJ\u00e1rnm\u00e9l bruddu gra\u00f0hestar\u201c<\/h3>\n<p>Svo kva\u00f0 J\u00f3n Hreggvi\u00f0sson s\u00f6gupers\u00f3na \u00ed \u00cdslandsklukku Halld\u00f3rs Laxness \u00feegar hann f\u00f3r me\u00f0 Pontusr\u00edmur eldri. \u00dea\u00f0 hefur yfirleitt veri\u00f0 tali\u00f0 hestum til hr\u00f3ss a\u00f0 bry\u00f0ja m\u00e9lin og margir l\u00edta \u00e1 \u00fea\u00f0 sem viljamerki. Sonju finnst \u00fea\u00f0 aftur \u00e1 m\u00f3ti af og fr\u00e1. \u201e\u00dea\u00f0 er svo langt fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 gott fyrir hesta a\u00f0 bry\u00f0ja m\u00e9l,\u201c segir h\u00fan. \u201eHestar sem eru \u00f3r\u00f3legir \u00ed munninum eru s\u00edfellt a\u00f0 japla \u00e1 m\u00e9lunum. \u00dev\u00ed mi\u00f0ur er algengt a\u00f0 \u00feeir lyfti m\u00e9lunum og b\u00edti svo \u00ed \u00feau og ey\u00f0ileggja tennurnar. Heilbrig\u00f0ar tennur eru me\u00f0 sv\u00f6rtum r\u00f6ndum e\u00f0a blettum, en h\u00e6gt er a\u00f0 sj\u00e1 hj\u00e1 m\u00f6rgum hestum a\u00f0 tennurnar eru \u00fea\u00f0 eyddar a\u00f0 \u00feessar rendur sj\u00e1st ekki lengur. \u00de\u00e1 getur opnast inn \u00ed t\u00f6nnina og \u00fe\u00e1 er h\u00e6tta \u00e1 r\u00f3tars\u00fdkingu sem lei\u00f0ir til tannp\u00ednu og ey\u00f0ileggingar tannarinnar.\u201c<\/p>\n<p>\u00deegar Sonja s\u00e9r svona tennur bendir h\u00fan f\u00f3lki \u00e1 a\u00f0 \u00fea\u00f0 ver\u00f0i a\u00f0 athuga me\u00f0 m\u00e9lin sem notu\u00f0 eru upp \u00ed hestinn. \u00deetta er \u00ed raun st\u00e6rsta \u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan heldur fj\u00f6lda fyrirlestra til \u00feess a\u00f0 fr\u00e6\u00f0a f\u00f3lk um munnheilsu hesta.<\/p>\n<p>Hva\u00f0 veldur \u00feessu?<\/p>\n<p>\u201eEin a\u00f0al\u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feetta gerist er s\u00fa a\u00f0 f\u00f3lk notar of l\u00f6ng m\u00e9l. \u00c9g hef m\u00e6lt munnbreidd \u00f3tal margra hesta. Lang flestir hestar m\u00e6last me\u00f0 10 sentimetra brei\u00f0an munn en einnig eru \u00fe\u00f3 nokku\u00f0 margir me\u00f0 10,5 sm. \u00de\u00f3tt m\u00f6rgum finnist \u00fea\u00f0 \u00f3tr\u00falegt \u00fe\u00e1 m\u00e6li \u00e9g fleiri hesta sem eru me\u00f0 9,5 sm brei\u00f0an munn en \u00fe\u00e1 sem eru 11 sm. \u00dea\u00f0 er \u00e1g\u00e6tt a\u00f0 nota 0,5 sm lengri m\u00e9l en munnurinn m\u00e6list. En mikilv\u00e6gast er a\u00f0 festa sig ekki \u00ed einhverjum kassa hva\u00f0 \u00feetta var\u00f0ar. Hlustum \u00e1 hestinn til \u00feess a\u00f0 finna \u00fat hva\u00f0 honum l\u00edkar best. Hvernig getum vi\u00f0 gert \u00fea\u00f0? Til d\u00e6mis me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 athuga hvort hann er a\u00f0 dj\u00f6flast \u00ed m\u00e9lunum e\u00f0a ekki. Ein m\u00e9l henta alls ekki \u00f6llum hestunum. \u00deau geta henta\u00f0 mj\u00f6g vel fyrir einn en veri\u00f0 vonlaus fyrir annan. \u00dev\u00ed \u00feurfum vi\u00f0 a\u00f0 eiga nokkur \u00f3l\u00edk m\u00e9l.\u201c<\/p>\n<p>\u201eAlgengustu mist\u00f6kin sem f\u00f3lk gerir eru sem sagt a\u00f0 nota of l\u00f6ng m\u00e9l. \u00dea\u00f0 eru \u00feau sem hestarnir eru a\u00f0 b\u00edta \u00ed. Tengt vandam\u00e1l er a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum of stutt \u00ed beislinu.\u00a0 Ef \u00fe\u00fa hefur l\u00f6ngu m\u00e9lin \u00feannig a\u00f0 \u00feau eru vi\u00f0 munnvikin fara \u00feau a\u00f0 glamra og \u00fe\u00e1 stytta margir of miki\u00f0 \u00ed beislinu. A\u00f0 \u00fea\u00f0 komi tv\u00e6r hrukkur \u00ed munnviki\u00f0 er m\u00fdta sem \u00e9g er a\u00f0 reyna a\u00f0 \u00fatr\u00fdma. M\u00e9lin eiga a\u00f0 liggja a\u00f0 munnvikinu. M\u00e9r finnst \u00fea\u00f0 r\u00f6kr\u00e9tt. Ef of stutt er \u00ed beislinu \u00fe\u00e1 er \u00fer\u00fdstingur \u00e1 munninn st\u00f6\u00f0ugur og hvernig eigum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 a\u00f0 umbuna hestinum ef ekki er h\u00e6gt a\u00f0 l\u00e9tta \u00fer\u00fdstingnum af munninn? A\u00f0 sama skapi kemur \u00fer\u00fdstingur \u00e1 hnakka hestsins ef of stutt er upp \u00ed honum. \u201c<\/p>\n<p>Margir eru hrifnir af \u00fev\u00ed ef hestar frey\u00f0a miki\u00f0. Hva\u00f0 finnst \u00fe\u00e9r um \u00fea\u00f0?<\/p>\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 er ekki g\u00f3\u00f0s viti ef hestur frey\u00f0ir mj\u00f6g miki\u00f0. \u00dea\u00f0 bendir til \u00feess a\u00f0 hann japlar of miki\u00f0 \u00e1 m\u00e9lunum og er \u00f3r\u00f3legur \u00ed munninum. Hann n\u00e6r ekki a\u00f0 kingja og \u00fev\u00ed myndast svona mikil fro\u00f0a. Hins vegar er \u00e6skileg a\u00f0 hann f\u00e1i sm\u00e1 \u201evaralit\u201c. \u00dea\u00f0 er \u00feegar \u00fea\u00f0 kemur sm\u00e1 fro\u00f0a \u00e1 varirnar. \u00dea\u00f0 er e\u00f0lilegt.\u201c<\/p>\n<h3><\/h3>\n<h3>Fyrst og fremst \u00fearf a\u00f0 hlusta \u00e1 hestinn og pr\u00f3fa sig \u00e1fram<\/h3>\n<p>Sonja vill l\u00edka sko\u00f0a \u00fdmsar l\u00edfe\u00f0lisfr\u00e6\u00f0ilegar takmarkanir. Sumir hestar eru me\u00f0 mj\u00f6g \u00fer\u00f6nga kj\u00e1lka og \u00fe\u00e1 liggur tungan miki\u00f0 ofan \u00e1 og \u00feeir eru oft a\u00f0 basla. Ef kj\u00e1lkarnir eru brei\u00f0ari liggur tungan meira \u00e1 milli tanngar\u00f0anna og \u00fe\u00e1 er meira pl\u00e1ss fyrir m\u00e9lin. Einnig \u00fearf a\u00f0 athuga hvort hesturinn er me\u00f0 grunnan g\u00f3m e\u00f0a stutt e\u00f0a l\u00f6ng munnvik. \u00deetta hefur allt \u00e1hrif \u00e1 hvernig m\u00e9l henta \u00feeim best.<\/p>\n<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"wp-image-1231 size-medium aligncenter\" src=\"https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2021\/02\/2020-02-18-12.51.14-300x198.jpg\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"198\" srcset=\"https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2021\/02\/2020-02-18-12.51.14-300x198.jpg 300w, https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2021\/02\/2020-02-18-12.51.14-1024x675.jpg 1024w, https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2021\/02\/2020-02-18-12.51.14-768x506.jpg 768w, https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2021\/02\/2020-02-18-12.51.14-1536x1012.jpg 1536w, https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2021\/02\/2020-02-18-12.51.14-2048x1350.jpg 2048w, https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2021\/02\/2020-02-18-12.51.14-696x459.jpg 696w, https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2021\/02\/2020-02-18-12.51.14-1068x704.jpg 1068w, https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2021\/02\/2020-02-18-12.51.14-637x420.jpg 637w, https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2021\/02\/2020-02-18-12.51.14-741x486.jpg 741w\" sizes=\"(max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/><\/p>\n<p>\u201e\u00c9g reyni a\u00f0 skipta hestum \u00ed \u00ferj\u00e1 flokka. \u00dea\u00f0 eru \u00feessir r\u00f3legu sem halda \u00e1 m\u00e9lunum og svara vel \u00e1bendingum. Svo eru \u00feeir \u00f3r\u00f3legu sem byrja a\u00f0 hreyfa m\u00e9lin e\u00f0a dj\u00f6flast \u00ed \u00feeim um lei\u00f0 og \u00feau eru komin upp \u00ed \u00fe\u00e1. \u00cd \u00feri\u00f0ja h\u00f3pnum eru svo fre\u00f0nir hestar, sem b\u00edta saman og breg\u00f0ast ekki vi\u00f0 \u00e1bendingum. Oftast er \u00fea\u00f0 eitthva\u00f0 tengt tamningunni, \u00fev\u00ed n\u00e1tt\u00farulegt vi\u00f0brag\u00f0 hesta er a\u00f0 breg\u00f0ast vi\u00f0 a\u00f0skotahlutum \u00ed munninum. \u00c9g skipti svo m\u00e9lunum \u00e1 svipa\u00f0an h\u00e1tt, \u00ed r\u00f3leg m\u00e9l eins og t.d. m\u00faffur, einj\u00e1rnungs hringam\u00e9l e\u00f0a eitthva\u00f0 sem hreyfist l\u00edti\u00f0. Gr\u00f6nnu m\u00e9lin eru r\u00f3legri af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fev\u00ed fyrirfer\u00f0arminni sem m\u00e9lin eru \u00fev\u00ed betra er \u00fea\u00f0 fyrir munnheilbrig\u00f0i hestsins. En ma\u00f0ur ver\u00f0ur a\u00f0 vera mj\u00f6g hreinskilinn vi\u00f0 sj\u00e1lfan sig og spyrja sig hvort ma\u00f0ur r\u00e1\u00f0i vi\u00f0 a\u00f0 r\u00ed\u00f0a me\u00f0 sl\u00edk m\u00e9l vegna \u00feess a\u00f0 meiri h\u00e6tta er \u00e1 a\u00f0 mei\u00f0a me\u00f0 gr\u00f6nnum m\u00e9lum. En ef sambandi\u00f0 vi\u00f0 hestinn er gott geta gr\u00f6nnu m\u00e9lin veri\u00f0 g\u00f3\u00f0 fyrir hestinn. M\u00f6rgum hestum l\u00edkar vel vi\u00f0 \u00feau af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feau fylla ekki upp \u00ed munninn, \u00feeim finnst best a\u00f0 vera me\u00f0 sem minnst af m\u00e1lmi uppi \u00ed s\u00e9r og eiga \u00fe\u00e1 au\u00f0veldara a\u00f0 bera m\u00e9lin r\u00f3lega.\u201c<\/p>\n<p>Sonja segir a\u00f0 \u00fev\u00ed st\u00f6\u00f0ugri sem m\u00e9lin eru \u00fev\u00ed r\u00f3legri eru \u00feau. Henni finnst til d\u00e6mis a\u00f0 allir \u00e6ttu a\u00f0 eiga einj\u00e1rnungs hringam\u00e9l og pr\u00f3fa a\u00f0 nota \u00feau fyrst ef hestur er mj\u00f6g \u00f3r\u00f3legur \u00ed munninum og b\u00edtur \u00ed m\u00e9lin. \u00deau hreyfast l\u00edti\u00f0 og eru st\u00f6\u00f0ug \u00feannig a\u00f0 hesturinn r\u00f3ast. H\u00f6ku\u00f3l geri \u00feau svo enn st\u00f6\u00f0ugri, hvort sem h\u00fan er notu\u00f0 me\u00f0 e\u00f0a \u00e1n m\u00fals. Einnig s\u00e9u \u00de-m\u00e9lin mj\u00f6g st\u00f6\u00f0ug og gott a\u00f0 temja hesta me\u00f0 \u00feeim \u00fear sem engin h\u00e6tta er \u00e1 a\u00f0 \u00feau dragist til \u00ed munninum.<\/p>\n<p>\u201eNoti ma\u00f0ur \u00fer\u00edskipt m\u00e9l \u00fearf mi\u00f0jubitinn a\u00f0 vera l\u00edtill.\u00a0 Ef mi\u00f0jubitinn er of langur \u00e1 li\u00f0urinn, sem tengir hann, til a\u00f0 fara ofan \u00ed tannlausa bili\u00f0 hj\u00e1 hestinum og getur s\u00e6rt hann. \u00dev\u00ed mi\u00f0ur s\u00e9 \u00e9g mj\u00f6g m\u00f6rg d\u00e6mi um \u00feetta. Langur mi\u00f0jubiti getur l\u00edka s\u00e6rt munnviki\u00f0. Ekki b\u00e6tir \u00far ef m\u00e9lin eru l\u00edka \u00ed heild sinni of l\u00f6ng. \u00dev\u00ed mi\u00f0ur er miki\u00f0 til af svona m\u00e9lum \u00ed verslunum h\u00e9r. \u00der\u00edskipt m\u00e9l setja jafnan \u00fer\u00fdsting \u00e1 alla tunguna og m\u00f6rgum hestum l\u00edkar \u00fea\u00f0 vel. En \u00feessi einbrotnu brotna fram \u00e1 tunguna og ef til vill me\u00f0 a\u00f0eins meiri \u00fer\u00fdsting \u00e1 tannlausa bili\u00f0. En ef \u00feau eru gr\u00f6nn \u00fe\u00e1 er meira pl\u00e1ss fyrir tunguna. Jafnvel tungubaslarar s\u00e6tta sig \u00feannig m\u00e9l. \u00c9g m\u00e6li me\u00f0 a\u00f0 f\u00f3lk pr\u00f3fi tv\u00edskiptu gr\u00f6nnu m\u00e9lin \u00e1 tungubaslara, en ma\u00f0ur \u00fearf au\u00f0vita\u00f0 veri\u00f0 me\u00f0vita\u00f0ur um a\u00f0 \u00feau geta meitt og \u00fev\u00ed \u00fearf a\u00f0 passa vel upp \u00e1 taumhaldi\u00f0. Eins og me\u00f0 \u00f6nnur m\u00e9l \u00fe\u00e1 er nau\u00f0synlegt a\u00f0 skipta ef minnsti grunur leikur \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feau geti meitt og pr\u00f3fa eitthva\u00f0 anna\u00f0.<\/p>\n<p>\u00c9g sko\u00f0a hvernig hesturinn minn ber m\u00e9lin. Heldur hann \u00e1 \u00feeim r\u00f3legur me\u00f0 loka\u00f0an munninn \u00feanga\u00f0 til a\u00f0 eitthva\u00f0 \u00e1reiti kemur? E\u00f0a er hann mj\u00f6g \u00f3r\u00f3legur? \u00de\u00e1 \u00fearf a\u00f0 nota r\u00f3leg m\u00e9l. En ef hesturinn er alveg fre\u00f0inn \u00ed munninum \u00fe\u00e1 \u00fearf ma\u00f0ur a\u00f0 finna m\u00e9l sem hreyfast meira e\u00f0a eru me\u00f0 s\u00e6ta m\u00e1lma, r\u00fallur e\u00f0a \u00feess h\u00e1ttar til \u00feess a\u00f0 l\u00edfga hann vi\u00f0 \u00ed munninum.\u00a0 Fyrst og fremst \u00fearf ma\u00f0ur a\u00f0 hlusta \u00e1 hestinn og pr\u00f3fa sig \u00e1fram me\u00f0 hva\u00f0 passar honum. Oftast er \u00fea\u00f0 einfaldasta best. \u00deegar m\u00e9l eru or\u00f0in eins og perlufesti \u00fe\u00e1 hl\u00fdtur a\u00f0 vera til einfaldari lausn. Flestir eiga fullan kassa af m\u00e9lum en oftast notar ma\u00f0ur tvenn m\u00e9l sem flestum hestum l\u00edkar vel vi\u00f0. Fl\u00e6kjum ekki m\u00e1lin.\u201c<\/p>\n<p>Hva\u00f0 \u00fearf a\u00f0 hafa \u00ed huga ef ma\u00f0ur vill r\u00ed\u00f0a vi\u00f0 stangir?<\/p>\n<p>\u201eStangir eru alveg s\u00e9r kafli. Almennt m\u00e1 segja a\u00f0 m\u00e9lin \u00e1 st\u00f6ngunum \u00feurfi a\u00f0 vera a\u00f0eins lengri en hringam\u00e9l til a\u00f0 augun hafi pl\u00e1ss, en oft er b\u00fai\u00f0 a\u00f0 gera r\u00e1\u00f0 fyrir \u00feessu. \u00c9g \u00e1 s\u00e9rsm\u00ed\u00f0a\u00f0ar stangir sem m\u00e9r l\u00edkar vel vi\u00f0. \u00de\u00e1 eru kj\u00e1lkarnir a\u00f0eins styttri en \u00e1 venjulegum st\u00f6ngum og vogarafli\u00f0 \u00fev\u00ed ekki eins miki\u00f0. En f\u00f3lk \u00fearf a\u00f0 l\u00e6ra a\u00f0 r\u00ed\u00f0a me\u00f0 stangir. \u00dea\u00f0 er ekki \u00fea\u00f0 sama og a\u00f0 r\u00ed\u00f0a me\u00f0 hringam\u00e9l. Stangir geta veri\u00f0 alveg \u00e6\u00f0islegar og m\u00e9r finnst \u00fe\u00e6r oft gera g\u00f3\u00f0an hest enn\u00fe\u00e1 betri. \u00deeir ver\u00f0a oft l\u00e9ttari og skemmtilegri. \u00deeir b\u00faa sj\u00e1lfir til umbun me\u00f0 ke\u00f0junni og l\u00e6ra a\u00f0 gefa eftir undan henni. \u00de\u00e1 f\u00e1 \u00feeir ekki bara umbun me\u00f0 taumnum heldur einnig \u00feegar \u00feeir finna a\u00f0 ke\u00f0jan gefur eftir. \u00deeir eru flj\u00f3tir a\u00f0 l\u00e6ra \u00feetta.\u201c<\/p>\n<h3><\/h3>\n<h3>Hefur pr\u00f3fa\u00f0 m\u00e9lalaus beisli \u00e1 alls kyns hestum<\/h3>\n<p>Vi\u00f0 r\u00e6\u00f0um l\u00edka um \u00fe\u00f6rfina \u00e1 a\u00f0 nota m\u00e9l. \u201e\u00dea\u00f0 er \u00ed raun og veru ekkert m\u00e1l a\u00f0 r\u00ed\u00f0a fr\u00e1 A til B, beygja, stoppa og r\u00ed\u00f0a gangtegundir \u00e1n \u00feess a\u00f0 nota m\u00e9l. F\u00f3lk heldur bara a\u00f0 \u00feau s\u00e9u nau\u00f0synleg. \u00deetta er allt \u00ed kollinum \u00e1 knapanum. Honum l\u00ed\u00f0ur eins og a\u00f0 hann hafi ekki eins mikla stj\u00f3rn \u00e1 hestinum \u00e1n m\u00e9la. \u00a0En \u00fea\u00f0 er ekkert m\u00e1l a\u00f0 kenna hestum \u00feetta. \u00dea\u00f0 er \u00feeim \u00ed raun og veru miklu e\u00f0lisl\u00e6gara a\u00f0 stoppa fr\u00e1 \u00fer\u00fdstingi \u00e1 nefi\u00f0 en a\u00f0 stoppa fr\u00e1 \u00fer\u00fdstingi \u00e1 munninn. \u00c9g hef pr\u00f3fa\u00f0 \u00feetta \u00e1 alls kyns hestum, l\u00edka \u00feeim sem eru vanir a\u00f0 hafa m\u00e9l. En \u00fea\u00f0 er samt eitthva\u00f0 me\u00f0 \u00feetta \u00feegar \u00fe\u00fa ert farin a\u00f0 gera meiri kr\u00f6fur, eins og \u00ed keppni, \u00fe\u00e1 vilja \u00feeir missa hollninguna fyrr. En undir venjulegum kringumst\u00e6\u00f0um, \u00fe\u00e1 er f\u00ednt a\u00f0 r\u00ed\u00f0a \u00feeim me\u00f0 m\u00e9lalaust beisli.<\/p>\n<p>Sem \u00fej\u00e1lfara l\u00edst m\u00e9r best \u00e1 m\u00e9lalaus beisli sem skila umbuninni strax. \u00c9g hef nota\u00f0 m\u00e9lalaust beisli miki\u00f0 \u00e1 einn hest sem \u00e1 erfitt me\u00f0 a\u00f0 vera r\u00f3legur \u00ed munninum. \u00dea\u00f0 hefur mj\u00f6g g\u00f3\u00f0 \u00e1hrif \u00e1 hann. M\u00e9r hefur reynst best a\u00f0\u00a0 nota \u00fea\u00f0 sem kalla\u00f0 er Side Pull. Einnig hef \u00e9g nota\u00f0 \u00fea\u00f0 sem kalla\u00f0 er Caveson, en \u00fe\u00e1 getur \u00fe\u00fa nota\u00f0 \u00fea\u00f0 eins og m\u00e9lalaust beisli en getur samt sem \u00e1\u00f0ur haft m\u00e9l \u00e1 \u00fev\u00ed \u00e1n \u00feess a\u00f0 nota \u00fea\u00f0. \u00dea\u00f0 er gott a\u00f0 nota \u00feetta \u00feegar \u00fe\u00fa ert a\u00f0 kenna hestinum \u00e1 m\u00e9l. \u00dea\u00f0 eru margs konar \u00fatf\u00e6rslur \u00ed bo\u00f0i, \u00fe\u00f3 ekki h\u00e9r \u00e1 landi. En au\u00f0velt er a\u00f0 panta \u00feetta fr\u00e1 netverslunum erlendis.<\/p>\n<p>\u00dev\u00ed mi\u00f0ur halda venjulegir \u00fatrei\u00f0amenn a\u00f0 \u00feeir hafi meiri stj\u00f3rn \u00e1 hestinum ef \u00feeir r\u00ed\u00f0a me\u00f0 m\u00e9l, en \u00fea\u00f0 er \u00e1rei\u00f0anlega vegna \u00feess a\u00f0 \u00feeir eru vanir \u00fev\u00ed. En \u00e9g held a\u00f0 ef \u00feeir mundu koma \u00ed veg fyrir\u00a0 m\u00f6rg vandam\u00e1l ef \u00fea\u00f0 v\u00e6ri almennt vi\u00f0urkennt a\u00f0 m\u00e9lalaus beisli virki vel. \u00dea\u00f0 er ekki gott a\u00f0 vera hr\u00e6ddur \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 smitast hr\u00e6\u00f0slan yfir \u00ed hestinn. Ma\u00f0ur er r\u00f3legri \u00feegar ma\u00f0ur kann eitthva\u00f0 og \u00fev\u00ed \u00fearf ma\u00f0ur a\u00f0 l\u00e6ra \u00e1 \u00feetta og skilja a\u00f0 \u00fe\u00fa hefur kannski alveg jafn g\u00f3\u00f0a stj\u00f3rn \u00e1 hestinum me\u00f0 m\u00e9lalausu beisli. Svo er alltaf gott a\u00f0 spyrja sig hvers vegna notum vi\u00f0 m\u00e9l.\u201c<\/p>\n<h3><\/h3>\n<h3>M\u00falar \u00fer\u00fdsta \u00e1 vi\u00f0kv\u00e6mar taugar e\u00f0a tennur og \u00feurfa a\u00f0 vera r\u00e9tt stilltir<\/h3>\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 fer eftir \u00fdmsu hvernig m\u00fal er best a\u00f0 nota,\u201c segir Sonja. \u201eSamkv\u00e6mt m\u00f6rgum ranns\u00f3knum sem hafa veri\u00f0 ger\u00f0ar \u00e1 \u00e1hrifum m\u00fala \u00e1 hesta kemur \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 yfirleitt \u00fer\u00fdsta \u00feeir \u00e1 vi\u00f0kv\u00e6ma sta\u00f0i \u00e1 h\u00f6f\u00f0i hestsins, hvort sem \u00fea\u00f0 eru tennurnar e\u00f0a vi\u00f0kv\u00e6mar taugar. \u00cd raun m\u00e1 segja a\u00f0 \u00fe\u00fdski, e\u00f0a venjulegi rei\u00f0m\u00fallinn, \u00fer\u00fdsti minna \u00e1 tennurnar en s\u00e1 enski. Hins vegar hefur hann l\u00edka \u00f3kosti ef hann er ekki r\u00e9tt stilltur. Ef nef\u00f3lin er of ne\u00f0arlega \u00fer\u00fdstir h\u00fan \u00e1 vi\u00f0kv\u00e6mt nefbeini\u00f0 og s\u00e9 hann of fast hertur \u00fe\u00e1 heftir hann \u00f6ndun og \u00fer\u00fdstir \u00e1 vi\u00f0kv\u00e6mar taugar. \u00dea\u00f0 m\u00e1 ekki. Krossm\u00fallinn \u00fer\u00fdstir m\u00e9lunum aftur \u00e1 m\u00f3ti \u00e1 tennurnar.<\/p>\n<p>Fyrir tannheilbrig\u00f0i er nasam\u00fallinn, r\u00e9tt sta\u00f0settur og ekki of hertur, heppilegastur. \u00de\u00e1 kemur hann a\u00f0 notum. Hann m\u00e1 ekki vera of laus, \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 f\u00e6r hesturinn st\u00f6\u00f0uga umbun og skilur ekki a\u00f0 hann \u00e1 a\u00f0 loka munninum. Ef hann er m\u00e1tulega stilltur getur hesturinn opna\u00f0 munninn en finnur fyrir m\u00falnum og f\u00e6r umbun ef hann lokar munninum. Ef m\u00fallinn er of \u00fer\u00f6ngt spenntur f\u00e6r hesturinn aldrei umbun. Hann getur ekki opna\u00f0 munninn, sem hann \u00fearf a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 gera, og af \u00fev\u00ed a\u00f0 m\u00fallinn er svona fast spenntur f\u00e6r hann aldrei umbun, sama hva\u00f0 hann gerir. Auk \u00feess getur hann ekki hreyft kj\u00e1lkann, sem hann \u00fearf l\u00edka a\u00f0 geta gert, og jafnvel ekki kyngt. \u00cd rauninni er \u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 notum m\u00fal a\u00f0 auka st\u00f6\u00f0ugleikann \u00ed munni hestsins og gera sambandi\u00f0 vi\u00f0 hestinn betra. \u00dea\u00f0 kom \u00ed lj\u00f3s \u00feegar nota\u00f0ir voru \u00fer\u00fdstim\u00e6lar a\u00f0 \u00fer\u00fdstingur \u00e1 taumnum var minni ef ri\u00f0i\u00f0 var me\u00f0 m\u00fal en \u00e1n hans. \u00dev\u00ed mi\u00f0ur er mj\u00f6g algengt a\u00f0 m\u00fallinn s\u00e9 allt of fast spenntur. Aflei\u00f0ing \u00feess a\u00f0 sk\u00e1reim er b\u00f6nnu\u00f0 \u00e1 enskum m\u00fal \u00ed keppni er s\u00fa a\u00f0 f\u00f3lk l\u00e6kkar hann og her\u00f0ir vel og \u00fea\u00f0 er ekki gott fyrir tennurnar.\u201c<\/p>\n<p>Hvernig m\u00fal notar Sonja?<\/p>\n<p>\u201cM\u00e9r l\u00edkar eiginlega ekki vi\u00f0 neinn m\u00fal og er alltaf a\u00f0 pr\u00f3fa mig \u00e1fram. M\u00e9r finnst \u00feeir anna\u00f0 hvort klemma m\u00e9lin e\u00f0a her\u00f0a a\u00f0 t\u00f6nnunum. \u00c9g var a\u00f0 kaupa m\u00e9r m\u00fal sem \u00e9g hef enn ekki pr\u00f3fa\u00f0. \u00deetta er m\u00fall sem er svipa\u00f0ur og m\u00falar me\u00f0 j\u00e1rnsp\u00f6ng, en \u00ed sta\u00f0 j\u00e1rns er sp\u00f6ngin \u00far le\u00f0ri og \u00fev\u00ed h\u00e6gt a\u00f0 stilla hann mun betur og hann liggur ekki a\u00f0 m\u00e9lunum. Auk \u00feess er h\u00e6gt a\u00f0 f\u00e6ra nef\u00f3lina til. \u00a0M\u00e9r vir\u00f0ist sem a\u00f0 \u00feannig geti m\u00e9lin veri\u00f0 svol\u00edti\u00f0 frj\u00e1ls. Svo m\u00e1 ekki gleyma \u00fev\u00ed a\u00f0 sumir hestar eru svo g\u00f3\u00f0ir \u00ed beisli a\u00f0 \u00ed raun og veru er alveg sama hva\u00f0a m\u00e9l ma\u00f0ur notar e\u00f0a m\u00fal. \u00deeir eru alltaf g\u00f3\u00f0ir.<\/p>\n<p>En \u00feegar \u00feetta er allt teki\u00f0 saman \u00fe\u00e1 vil \u00e9g fyrst og fremst f\u00e1 f\u00f3lk til a\u00f0 nota styttri m\u00e9l, hafa mi\u00f0jubitann stuttan, ef \u00feannig m\u00e9l eru notu\u00f0, hafa beisli\u00f0 m\u00e1tulega langt uppi \u00ed hestinum, hafa m\u00falinn r\u00e9tt stilltan og sko\u00f0a taumhaldi\u00f0. Mikilv\u00e6gast er a\u00f0 hlusta \u00e1 hestinn og f\u00e1 hann til a\u00f0 vera r\u00f3legan \u00ed munninum.\u201c<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Sj\u00e1 einnig vi\u00f0tal vi\u00f0 Sonju L\u00edndal h\u00e9r \u00e1 hestamennska.is um <a href=\"https:\/\/hestamennska.is\/naudsynlegt-er-ad-skoda-munnhol-hesta-reglulega\/\">munnheilsu hesta\u00a0<\/a><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>L\u00edklegt er a\u00f0 flestir hestamenn hafi \u00e1 einhverjum t\u00edmapunkti, e\u00f0a jafnvel oft,\u00a0 sta\u00f0i\u00f0 frammi fyrir spurningunni um hva\u00f0a m\u00e9l \u00e6tli henti hestinum hans best? \u00deegar lei\u00f0in liggur svo \u00ed hestav\u00f6ruverslun til \u00feess a\u00f0 fj\u00e1rfesta \u00ed einu sl\u00edku blasir vi\u00f0 manni sannkalla\u00f0ur frumsk\u00f3gur af m\u00e9lum og valkv\u00ed\u00f0inn ver\u00f0ur enn meiri? Til \u00feess a\u00f0 f\u00e1 einhvern botn [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":1232,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[18,15,12,16,19],"tags":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1052"}],"collection":[{"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1052"}],"version-history":[{"count":14,"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1052\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1321,"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1052\/revisions\/1321"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/media\/1232"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1052"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1052"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1052"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}