{"id":1325,"date":"2021-03-03T18:16:18","date_gmt":"2021-03-03T18:16:18","guid":{"rendered":"http:\/\/hestamennska.is\/?p=1325"},"modified":"2021-03-03T18:16:18","modified_gmt":"2021-03-03T18:16:18","slug":"jardskjalftarnir-virdast-ekki-hafa-mikil-ahrif-a-hross","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hestamennska.is\/?p=1325","title":{"rendered":"Jar\u00f0skj\u00e1lftarnir vir\u00f0ast ekki hafa mikil \u00e1hrif \u00e1 hross"},"content":{"rendered":"<p>Hross vir\u00f0ast yfirleitt ekki kippa s\u00e9r upp vi\u00f0 jar\u00f0skj\u00e1lfta og kemur \u00fea\u00f0 eflaust m\u00f6rgum \u00e1 \u00f3vart. Eftir fyrsta st\u00f3ra skj\u00e1lftann f\u00f3r undirritu\u00f0 rakleitt \u00fat \u00ed hesth\u00fas og \u00fear \u00e1tu hrossin sitt hey eins og ekkert hef\u00f0i \u00ed skorist.<\/p>\n<p>\u00cd jar\u00f0skj\u00e1lftahrinunni \u00e1 Reykjanesi sem sta\u00f0i\u00f0 hefur yfir \u00ed viku \u00feegar \u00feetta er skrifa\u00f0 hafa borist margar fr\u00e9ttir af \u00fev\u00ed hvernig f\u00f3lk bregst vi\u00f0 jar\u00f0skj\u00e1lftum. \u00cd lj\u00f3s kemur a\u00f0 f\u00f3lk bregst afar mismunandi vi\u00f0 og fer \u00fea\u00f0 eflaust eftir \u00fev\u00ed hversu n\u00e6mt \u00fea\u00f0 er en ekki s\u00ed\u00f0ur eftir sta\u00f0setningu, hvort f\u00f3lk stendur, situr e\u00f0a er \u00e1 fer\u00f0inni og eins hvernig h\u00fasin sem \u00fea\u00f0 er statt \u00ed eru bygg\u00f0, \u00e1 kl\u00f6pp, p\u00fa\u00f0um og jafnvel ef \u00fea\u00f0 er statt \u00fati hvort \u00fea\u00f0 stendur \u00e1 steinsteypu e\u00f0a \u00fati \u00ed m\u00fdri.<\/p>\n<p>Hundar vir\u00f0ast margir vera mj\u00f6g vi\u00f0kv\u00e6mir fyrir jar\u00f0skj\u00e1lftum og s\u00fa sem \u00feetta ritar \u00e1 sj\u00f6 m\u00e1na\u00f0a gamalli \u00edslenskri t\u00edk sem hristist og skelfur af hr\u00e6\u00f0slu vi\u00f0 skj\u00e1lftana, a\u00f0allega \u00fe\u00e1 st\u00f3ru. \u00cd fr\u00e9ttum \u00e1 R\u00daV kom fram a\u00f0 margir hundaeigendur hafa leita\u00f0 til d\u00fdral\u00e6kna og jafnvel \u00feurft a\u00f0 gefa hundunum r\u00f3andi lyf.<\/p>\n<div style=\"width: 696px;\" class=\"wp-video\"><!--[if lt IE 9]><script>document.createElement('video');<\/script><![endif]-->\n<video class=\"wp-video-shortcode\" id=\"video-1325-1\" width=\"696\" height=\"329\" preload=\"metadata\" controls=\"controls\"><source type=\"video\/mp4\" src=\"https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2021\/03\/20210219_173516_1.mp4?_=1\" \/><a href=\"https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2021\/03\/20210219_173516_1.mp4\">https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2021\/03\/20210219_173516_1.mp4<\/a><\/video><\/div>\n<p>En hvernig stendur \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 hrossin, \u00feessi vi\u00f0kv\u00e6mu fl\u00f3ttad\u00fdr, vir\u00f0ast ekki l\u00e1ta \u00feessar jar\u00f0hr\u00e6ringar \u00e1 sig f\u00e1? \u00dea\u00f0 er erfitt a\u00f0 svara \u00fev\u00ed, en til a\u00f0 forvitnast um hvort d\u00fdral\u00e6knar hef\u00f0u or\u00f0i\u00f0 varir vi\u00f0 hr\u00e6\u00f0slu \u00ed hrossum vegna jar\u00f0skj\u00e1lftanna haf\u00f0i <em>Hestamennska<\/em> samband vi\u00f0 Bj\u00f6rgvin \u00de\u00f3risson d\u00fdral\u00e6kni, en hann rekur d\u00fdral\u00e6kna\u00fej\u00f3nustuna Dr\u00f6sul \u00ed Spretti \u00ed K\u00f3pavogi. Hann sag\u00f0ist ekkert hafa \u00feurft a\u00f0 sinna hrossum vegna jar\u00f0skj\u00e1lfta. Hestarnir \u00ed h\u00fasinu hj\u00e1 honum hafa veri\u00f0 sallar\u00f3legir og varla liti\u00f0 upp \u00fe\u00f3 a\u00f0 a\u00f0eins hristist.<\/p>\n<p>\u201e\u00deetta vir\u00f0ist ekki trufla \u00fe\u00e1 miki\u00f0 og \u00feeir vir\u00f0ast ekki kippa s\u00e9r upp vi\u00f0 jar\u00f0skj\u00e1lfta. \u00dea\u00f0 hefur enginn hringt \u00ed mig vegna \u00f3r\u00f3legra hesta \u00fat af jar\u00f0skj\u00e1lftum, ekki einn einasti,\u201c sag\u00f0i Bj\u00f6rgvin. \u201e\u00c9g var einmitt a\u00f0 gera a\u00f0ger\u00f0 h\u00e9rna hj\u00e1 m\u00e9r \u00feegar st\u00e6rsti skj\u00e1lftinn kom og \u00e9g heyr\u00f0i allar innr\u00e9ttingarnar hristast. En hestarnir voru sultuslakir.\u201c<\/p>\n<p>Eigendur hrossa hlj\u00f3ta a\u00f0 taka \u00feessum t\u00ed\u00f0indum fagnandi og \u00fea\u00f0 ger\u00f0u einnig stj\u00f3rnendur og eigendur hrossa \u00e1 st\u00f3rri hestas\u00fdningu \u00ed Washingtonfylki \u00ed Bandar\u00edkjunum \u00ed fyrra \u00feegar jar\u00f0sksj\u00e1lfti rei\u00f0 yfir. Eigendurnir ruku til og \u00e6tlu\u00f0u a\u00f0 tengja hestakerrurnar vi\u00f0 b\u00edla s\u00edna og fara og s\u00e6kja hrossin inn \u00ed risast\u00f3rt hesth\u00fas \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu. \u00deegar \u00feanga\u00f0 var komi\u00f0 voru allir 414 hestarnir sem \u00fear voru inni sallar\u00f3legir a\u00f0 \u00e9ta. Sj\u00e1 <a href=\"https:\/\/www.youtube.com\/watch?v=10GR7DWx0Z4&amp;feature=emb_logo\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">h\u00e9r<\/a>.<\/p>\n<p>Enn vitum vi\u00f0 ekki hvernig hross breg\u00f0ast vi\u00f0 ef byrjar a\u00f0 gj\u00f3sa. En Matv\u00e6lastofnun hefur gefi\u00f0 \u00fat vi\u00f0b\u00fana\u00f0 d\u00fdraeigenda vegna n\u00e1tt\u00faruhamfara\u00a0 Sj\u00e1 <a href=\"https:\/\/www.mast.is\/is\/um-mast\/frettir\/frettir\/vidbunadur-dyraeigenda-vegna-natturuhamfara-1?fbclid=IwAR1VOCu3TCd-LiImOrQxrxqP1R4tsSQSOJMAhzDzaswRhC3Y3zZ7FLpF-so\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">h\u00e9r<\/a>.<\/p>\n<p>Einnig s\u00e9rstakar lei\u00f0beiningar fyrir d\u00fdraeigendur vegna eldgoss. Sj\u00e1 <a href=\"https:\/\/umsokn.mast.is\/onequalityweb\/Displaydocument.aspx?itemid=286366577821363041241\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">h\u00e9r<\/a><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Hross vir\u00f0ast yfirleitt ekki kippa s\u00e9r upp vi\u00f0 jar\u00f0skj\u00e1lfta og kemur \u00fea\u00f0 eflaust m\u00f6rgum \u00e1 \u00f3vart. Eftir fyrsta st\u00f3ra skj\u00e1lftann f\u00f3r undirritu\u00f0 rakleitt \u00fat \u00ed hesth\u00fas og \u00fear \u00e1tu hrossin sitt hey eins og ekkert hef\u00f0i \u00ed skorist. \u00cd jar\u00f0skj\u00e1lftahrinunni \u00e1 Reykjanesi sem sta\u00f0i\u00f0 hefur yfir \u00ed viku \u00feegar \u00feetta er skrifa\u00f0 hafa borist margar [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":1327,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[12,15],"tags":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1325"}],"collection":[{"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1325"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1325\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1330,"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1325\/revisions\/1330"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/media\/1327"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1325"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1325"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1325"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}