{"id":1389,"date":"2022-11-03T09:41:56","date_gmt":"2022-11-03T09:41:56","guid":{"rendered":"http:\/\/hestamennska.is\/?p=1389"},"modified":"2022-11-03T23:50:21","modified_gmt":"2022-11-03T23:50:21","slug":"magasar-mun-algengara-i-islenskum-hrossum-en-adur-var-talid","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hestamennska.is\/?p=1389","title":{"rendered":"Magas\u00e1r mun algengara \u00ed \u00edslenskum hrossum en \u00e1\u00f0ur var tali\u00f0"},"content":{"rendered":"<p style=\"font-weight: 400;\">Magas\u00e1r er mun algengara \u00ed \u00edslenskum hestum en \u00e1\u00f0ur hefur veri\u00f0 tali\u00f0. \u00cd ranns\u00f3kn \u00e1 t\u00ed\u00f0ni magas\u00e1ra \u00ed \u00edslenskum hestum, sem \u00dand\u00edna \u00ddr \u00deorgr\u00edmsd\u00f3ttir d\u00fdral\u00e6knir framkv\u00e6mdi \u00e1samt N\u00f6nnu Luthersson d\u00fdral\u00e6kni, sem stj\u00f3rna\u00f0i ranns\u00f3kninni, og v\u00edsindam\u00f6nnunum Patricia A Harris, Tim Parkins og Euan D. Bennet, voru 71 hross ranns\u00f6ku\u00f0 fr\u00e1 10 b\u00e6jum \u00e14 \u00f3l\u00edkum landssv\u00e6\u00f0um \u00e1 \u00cdslandi. Me\u00f0alaldur \u00feeirra var \u00feriggja vetra.<\/p>\n<p style=\"font-weight: 400;\">Magaspeglun var ger\u00f0 \u00e1 hrossunum innan tveggja vikna fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feau voru tekin \u00e1 h\u00fas til tamningar e\u00f0a \u00fej\u00e1lfunar. Af \u00feessum hrossum voru 71 speglu\u00f0 aftur a\u00f0 \u00e1tta vikum li\u00f0num. Einnig voru \u00fdmsir \u00fe\u00e6ttir, svo sem umhir\u00f0a og a\u00f0st\u00e6\u00f0ur, \u00e1samt heg\u00f0un hrossanna, athuga\u00f0ir me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 spyrja eigendur e\u00f0a \u00fej\u00e1lfara hrossanna beint. Metin var breyting \u00e1 hrossunum \u00e1 \u00feessu \u00e1tta vikna t\u00edmabili.<\/p>\n<p style=\"font-weight: 400;\"><em>Hestamennska<\/em> r\u00e6ddi vi\u00f0 \u00dand\u00ednu um ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur \u00e1 ranns\u00f3kninni sem birtar hafa veri\u00f0 \u00ed v\u00edsindat\u00edmariti Bandar\u00edsku d\u00fdral\u00e6knasamtakanna, AVMA Journal (American Veterinary Medical Association). H\u00fan sag\u00f0i ni\u00f0urst\u00f6\u00f0urnar hafa komi\u00f0 verulega \u00e1 \u00f3vart.<\/p>\n<h3>Tryppi koma inn af \u00fatigangi me\u00f0 magas\u00e1r<\/h3>\n<p style=\"font-weight: 400;\">\u201e\u00deetta voru eiginlega sjokkerandi ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur \u00feegar vi\u00f0 sko\u00f0u\u00f0um tryppin \u00ed fyrri hluta ranns\u00f3knarinnar,\u201c sag\u00f0i h\u00fan. H\u00e1tt hlutfall tryppanna, e\u00f0a 71,6%, \u00a0voru me\u00f0 s\u00e1r \u00ed hv\u00edta hluta magans, \u00fe.e. efri hluta magans.Upprunaleg hugmynd okkar var a\u00f0 taka inn tryppi sem helst h\u00f6f\u00f0u aldrei veri\u00f0 snert \u00e1\u00f0ur og spegla \u00feau sem fyrst eftir a\u00f0 \u00feau komu inn og s\u00ed\u00f0an aftur eftir \u00e1tta vikur til \u00feess a\u00f0 sj\u00e1 hvernig me\u00f0h\u00f6ndlun okkar mannanna hef\u00f0i \u00e1hrif \u00e1 sj\u00fakd\u00f3minn. \u00dea\u00f0 hefur alltaf veri\u00f0 tali\u00f0 a\u00f0 \u00feessi sj\u00fakd\u00f3mur tengist mj\u00f6g \u00fev\u00ed hvernig vi\u00f0 h\u00f6ldum hestana, stressi\u00f0 \u00ed kringum frumtamningar, hva\u00f0 hrossunum er gefi\u00f0 oft og fleiru. En \u00feetta var algj\u00f6rlega \u00fever\u00f6fugt. \u00cd lj\u00f3s kom a\u00f0 tryppin sem voru a\u00f0 koma inn \u00e1 h\u00fas \u00ed fyrsta sinn voru me\u00f0 alvarleg magas\u00e1r, en sk\u00e1nu\u00f0u eftir a\u00f0 \u00feau komust \u00ed umsj\u00e1 manna og greindust ekki nema 25,4% tryppanna me\u00f0 magas\u00e1r eftir a\u00f0 hafa veri\u00f0 \u00e1 h\u00fasi \u00ed \u00e1tta vikur.<\/p>\n<figure id=\"attachment_1393\" aria-describedby=\"caption-attachment-1393\" style=\"width: 249px\" class=\"wp-caption alignleft\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\" wp-image-1393\" src=\"https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2022\/11\/Magasar-1-e1667468347928-204x300.jpg\" alt=\"Magas\u00e1r\" width=\"249\" height=\"366\" srcset=\"https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2022\/11\/Magasar-1-e1667468347928-204x300.jpg 204w, https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2022\/11\/Magasar-1-e1667468347928-285x420.jpg 285w, https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2022\/11\/Magasar-1-e1667468347928.jpg 306w\" sizes=\"(max-width: 249px) 100vw, 249px\" \/><figcaption id=\"caption-attachment-1393\" class=\"wp-caption-text\">Magaspeglun. \u00dand\u00edna \u00ddr \u00deorgr\u00edmsd\u00f3ttir. \u00deorgr\u00edmur Hallgr\u00edmsson fa\u00f0ir hennar a\u00f0sto\u00f0ar.<br \/>\u00a9\ufe0f\u00dand\u00edna \u00ddr \u00deorgr\u00edmsd\u00f3ttir<\/figcaption><\/figure>\n<p style=\"font-weight: 400;\">\u00dear sem a\u00f0 ni\u00f0urst\u00f6\u00f0urnar \u00far trypparanns\u00f3kninni okkar voru svo sl\u00e1ndi, var \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 dr\u00edfa \u00ed n\u00e6stu ranns\u00f3kn, sem g\u00e6ti vonandi f\u00e6rt okkur n\u00e6r svarinu af hverju tryppin sem komu \u00e1 h\u00fas \u00ed okt\u00f3ber voru me\u00f0 magas\u00e1r \u00ed hv\u00edta hluta. \u00dartaki\u00f0 er 80 hross sem eru \u00e1 \u00fatigangi allt \u00e1ri\u00f0 og eru \u00feau magaspeglu\u00f0 fj\u00f3rum sinnum yfir \u00e1ri\u00f0. Auk \u00feess erum vi\u00f0 n\u00fana a\u00f0 taka grasas\u00fdni \u00ed \u00feeim h\u00f6gum sem hrossin eru \u00e1 hverju sinni og erum b\u00fain a\u00f0 skr\u00e1 n\u00e6stu ve\u00f0urst\u00f6\u00f0 vi\u00f0 b\u00e6ina til a\u00f0 geta fylgst me\u00f0 ve\u00f0r\u00e1ttunni yfir \u00e1ri\u00f0.<\/p>\n<p style=\"font-weight: 400;\">Vi\u00f0 \u00e6tlum a\u00f0 athuga hva\u00f0a \u00e1hrif \u00fea\u00f0 hefur \u00e1 hrossin \u00feegar gr\u00f6sin eru a\u00f0 breytast \u00e1 haustin. Gr\u00f6sin breytast miki\u00f0, til d\u00e6mis magn tr\u00e9nis og \u00fev\u00ed hafa hrossinn kannski ekki jafn miki\u00f0 til a\u00f0 tyggja. \u00de\u00e1 gerist \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00feau framlei\u00f0a ekki n\u00f3gu miki\u00f0 munnvatn sem hj\u00e1lpar til vi\u00f0 a\u00f0 h\u00e6kka s\u00fdrustigi\u00f0 \u00ed maganum. Magas\u00e1r orsakast af s\u00fdruertingu. S\u00fdrustig \u00ed maga hests sem er fastandi er \u00ed kringum 1,6. Eftir gj\u00f6f er s\u00fdrustigi\u00f0 \u00ed kringum 4, en 4 til 5 t\u00edmum l\u00e6kkar \u00fea\u00f0 aftur ni\u00f0ur \u00ed 1,6. \u00deegar hesturinn tyggur heyi\u00f0 \u00fe\u00e1 myndar hann munnvatn. Munnvatn hestsins inniheldur ens\u00edm sem hj\u00e1lpa til vi\u00f0 ni\u00f0urbrot og basa (bikarbonat) sem vegur \u00e1 m\u00f3ti s\u00fdrunni \u00ed maganum og h\u00e6kkar s\u00fdrustigi\u00f0.<\/p>\n<p style=\"font-weight: 400;\">Einnig \u00fearf a\u00f0 athuga hvernig ve\u00f0ri\u00f0 er. Ef \u00fea\u00f0 er sl\u00e6mt standa \u00feau kannski meira og h\u00edma og \u00e9ta ekki eins miki\u00f0. Vi\u00f0 h\u00f6fum einnig s\u00e9\u00f0 a\u00f0 st\u00e6r\u00f0 \u00e1 st\u00f3\u00f0um og goggunarr\u00f6\u00f0 hafa mikil \u00e1hrif, b\u00e6\u00f0i me\u00f0 tilliti til s\u00e1rs \u00ed hv\u00edta hluta og rau\u00f0a hluta magans.\u201c<\/p>\n<h3 style=\"font-weight: 400;\">Stress og langvarandi verkir \u00e1h\u00e6ttu\u00fe\u00e6ttir<\/h3>\n<p style=\"font-weight: 400;\">\u00dand\u00edna \u00fatsk\u00fdrir hva\u00f0 er hv\u00edti hluti magans og hva\u00f0 rau\u00f0i: \u201eMagi hrossa skiptist \u00ed tv\u00e6r sl\u00edmh\u00fa\u00f0ir, hv\u00edta hlutann og rau\u00f0a hlutann. Efri hluti magans er hv\u00edt sl\u00edmh\u00fa\u00f0 sem hefur mj\u00f6g l\u00edti\u00f0 varnarlag gagnvart magas\u00fdrunni. S\u00e1r \u00ed hv\u00edta hlutanum eru f\u00f3\u00f0urtengd. Aftur \u00e1 m\u00f3ti eru s\u00e1r \u00ed rau\u00f0a hlutanum, ne\u00f0ri hluta magans, stresstengd. En \u00ed rau\u00f0a hlutanum er mun sterkara varnarlag, enda er \u00feessi hluti magans alltaf \u00ed snertingu vi\u00f0 magas\u00fdruna. \u00dear er einnig meira bl\u00f3\u00f0fl\u00e6\u00f0i \u00feannig a\u00f0 sl\u00edmh\u00fa\u00f0in getur gert \u00f6rar vi\u00f0 sig. En stress veldur magas\u00e1ri og h\u00e6gt er a\u00f0 skipta \u00e1st\u00e6\u00f0u fyrir stressinu upp \u00ed frum\u00e1st\u00e6\u00f0u (primary) og auka\u00e1st\u00e6\u00f0u (secundary). Frum\u00e1st\u00e6\u00f0a g\u00e6ti veri\u00f0 \u00feegar hestur er einfaldlega stressa\u00f0ur a\u00f0 e\u00f0lisfari, en auka\u00e1st\u00e6\u00f0a g\u00e6ti veri\u00f0 vegna \u00feess a\u00f0 eitthva\u00f0 anna\u00f0 hrj\u00e1ir hann sem veldur stressinu, til d\u00e6mis l\u00edkamlegir \u00e1verkar, st\u00edfur spjaldhryggur, h\u00f3fsperra, vandam\u00e1l \u00ed sto\u00f0kerfi, brotnar tennur, sprunga \u00ed h\u00f3f og margt fleira.\u201c<\/p>\n<p style=\"font-weight: 400;\">\u00dand\u00edna segir greinilegt a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 tenging \u00fearna \u00e1 milli. \u201e\u00c9g hef veri\u00f0 a\u00f0 magaspegla hesta sem tennur hafa veri\u00f0 teknar \u00far, hafa veri\u00f0 me\u00f0 \u00e1verka \u00e1 sinum og li\u00f0b\u00f6ndum e\u00f0a sprungu \u00ed h\u00f3fi. \u00dea\u00f0 helst \u00fe\u00e1 oft \u00ed hendur a\u00f0 hestar sem hafa lent \u00ed einhvers konar \u00e1falli sem veldur \u00feeim vanl\u00ed\u00f0an eru me\u00f0 magas\u00e1r \u00ed rau\u00f0a hluta magans. S\u00edfelld vanl\u00ed\u00f0an og verkir lei\u00f0a til streitu sem lei\u00f0ir \u00fat \u00ed magann og veldur magas\u00e1ri.\u201c<\/p>\n<p style=\"font-weight: 400;\">Magas\u00e1r er \u00fev\u00ed mun algengara vandam\u00e1l hj\u00e1 \u00edslenska hestinum en \u00feau sem a\u00f0 ranns\u00f3kninni st\u00f3\u00f0u h\u00e9ldu fyrirfram. \u00c1stand rei\u00f0hesta h\u00e9r \u00e1 landi vir\u00f0ist \u00fe\u00f3 vera heldur sk\u00e1rra en erlendar ranns\u00f3knir s\u00fdna. T\u00ed\u00f0ni magas\u00e1ra \u00ed hv\u00edta hluta magans er heldur l\u00e6gri h\u00e9r en me\u00f0alt\u00f6l s\u00fdna. Aftur \u00e1 m\u00f3ti vir\u00f0ist t\u00ed\u00f0ni magas\u00e1ra \u00ed rau\u00f0a hluta magans vera svipu\u00f0 h\u00e9r og erlendis. \u201e\u00deetta segir m\u00e9r a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 alveg jafn stressandi a\u00f0 vera hestur \u00e1 \u00cdslandi og \u00ed \u00f6\u00f0rum l\u00f6ndum,\u201c segir \u00dand\u00edna.<\/p>\n<p style=\"font-weight: 400;\">\u201e\u00c1hrifin \u00e1 hestana eru mj\u00f6g mismunandi,\u201c segir h\u00fan. \u201eSumir hestar eru loka\u00f0ir og vir\u00f0ast bara s\u00e6tta sig vi\u00f0 \u00feennan kr\u00f3n\u00edska verk. \u00deeir h\u00faka kannski einir \u00fati \u00ed ger\u00f0i og s\u00e6kjast ekki miki\u00f0 eftir f\u00e9lagsskap. A\u00f0rir hestar eru mj\u00f6g vi\u00f0kv\u00e6mir og breg\u00f0ast illa vi\u00f0 allri snertingu \u00e1 s\u00ed\u00f0una og verja sig \u00feegar veri\u00f0 er a\u00f0 leggja \u00e1 \u00fe\u00e1 hnakk og her\u00f0a gj\u00f6r\u00f0ina af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeim finnst \u00fea\u00f0 \u00f3\u00fe\u00e6ginlegt. Hj\u00e1 \u00feannig hestum er au\u00f0veldara a\u00f0 sj\u00e1 einkennin \u00fe\u00f3tt \u00feau s\u00e9u kannski alveg jafn sl\u00e6m hj\u00e1 hinum r\u00f3lega sem s\u00e6tta sig vi\u00f0 verkina og vanl\u00ed\u00f0unina.<\/p>\n<h3>Hrossum \u00fearf a\u00f0 gefa \u00ferisvar til fj\u00f3rum sinnum \u00e1 dag<\/h3>\n<p style=\"font-weight: 400;\">Enn \u00e1 eftir a\u00f0 f\u00e1 sv\u00f6r vi\u00f0 \u00fdmsum spurningum og ranns\u00f3knin heldur \u00e1fram. Til d\u00e6mis kom \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 f\u00f3lk sem t\u00f3k \u00feessi tryppi inn sem voru \u00ed ranns\u00f3kninni fundu engan mun \u00e1 \u00feeim og tryppum yfirleitt. \u00deau voru ekkert hrekkj\u00f3ttari e\u00f0a vi\u00f0kv\u00e6mari en \u00f6nnur. \u00de\u00e1 vaknar s\u00fa spurning hvort \u00e1standi\u00f0 s\u00e9 almennt svona. \u201eVi\u00f0 \u00feurfum \u00fev\u00ed a\u00f0 nota vitneskjuna um a\u00f0 tryppin lagist \u00feegar li\u00f0nar eru nokkrar vikur \u00ed innist\u00f6\u00f0unni til a\u00f0 reyna a\u00f0 b\u00e6ta velfer\u00f0 hrossana. \u00deessar ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur geta \u00fev\u00ed n\u00fdst okkur sem mikilv\u00e6gar uppl\u00fdsingar og sagt okkur a\u00f0 byrja a\u00f0 heyja tryppin okkar \u00feegar \u00feau koma \u00e1 h\u00fas \u00ed einhvern t\u00edma, \u00e1\u00f0ur en fari\u00f0 er a\u00f0 vinna me\u00f0 \u00feau. \u00dea\u00f0 var oftast gert \u00ed gamla daga. \u00de\u00e1 var reyndar oftast gefi\u00f0 einu sinni \u00e1 dag, en \u00ed lj\u00f3s kemur a\u00f0 til \u00feess a\u00f0 vel eigi a\u00f0 vera \u00fearf a\u00f0 gefa hrossum a\u00f0 minnsta kosti \u00ferisvar \u00e1 dag, helst fj\u00f3rum sinnum.<\/p>\n<p style=\"font-weight: 400;\">\u00c9g er n\u00fdb\u00fain a\u00f0 magaspegla tvo geldinga fr\u00e1 sama eiganda. \u00deeir voru \u00ed h\u00f3pi sex hrossa \u00e1 sama beitarstykkinu og \u00fev\u00ed bjuggu \u00feeir vi\u00f0 n\u00e1kv\u00e6mlega s\u00f6mu a\u00f0st\u00e6\u00f0ur \u00ed jafn langan t\u00edma. Annar \u00feeirra var mj\u00f6g sl\u00e6mur \u00ed hv\u00edta hluta magans, en ekkert s\u00e1st \u00e1 hinum. \u00cd lj\u00f3s kom a\u00f0 s\u00e1 sem var sl\u00e6mur haf\u00f0i veri\u00f0 geltur fj\u00f6gurra vetra og var alltaf eitthva\u00f0 a\u00f0 vesenast \u00ed hinum hrossunum og gaf s\u00e9r \u00fev\u00ed varla n\u00e6gan t\u00edma til a\u00f0 \u00e9ta. Hinn var miklu r\u00f3legri og \u00e1t og \u00e1t og var bara hestur. Svo \u00feetta er mj\u00f6g pers\u00f3nubundi\u00f0 l\u00edka.\u201c<\/p>\n<p style=\"font-weight: 400;\">\u00dand\u00edna segist ekki hafa veri\u00f0 me\u00f0 neinar v\u00e6ntingar fyrirfram hva\u00f0 var\u00f0ar ranns\u00f3knina. Henni hafi bara fundist vi\u00f0fangsefni\u00f0 spennandi.. \u201e\u00dea\u00f0 sem stendur upp \u00far er a\u00f0 \u00fea\u00f0 er s\u00edfellt a\u00f0 koma betur \u00ed lj\u00f3s hversu algengt er a\u00f0 \u00edslenskir hestar s\u00e9u me\u00f0 magas\u00e1r. \u00c9g var\u00f0 v\u00f6r vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 margir sem \u00e1ttu hross \u00ed ranns\u00f3kninni hef\u00f0i aldrei gruna\u00f0 a\u00f0 hesturinn \u00feeirra v\u00e6ri me\u00f0 magas\u00e1r og hef\u00f0u kannski ekki tr\u00faa\u00f0 \u00fev\u00ed nema a\u00f0 \u00feeir voru vi\u00f0staddir og horf\u00f0u \u00e1 t\u00f6lvuskj\u00e1inn \u00e1 me\u00f0an \u00e1 magaspegluninni st\u00f3\u00f0.<\/p>\n<figure id=\"attachment_1394\" aria-describedby=\"caption-attachment-1394\" style=\"width: 300px\" class=\"wp-caption alignleft\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"wp-image-1394 size-medium\" src=\"https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2022\/11\/Magasar-2-300x225.jpg\" alt=\"Magas\u00e1r\" width=\"300\" height=\"225\" srcset=\"https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2022\/11\/Magasar-2-300x225.jpg 300w, https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2022\/11\/Magasar-2-80x60.jpg 80w, https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2022\/11\/Magasar-2-265x198.jpg 265w, https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2022\/11\/Magasar-2.jpg 448w\" sizes=\"(max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/><figcaption id=\"caption-attachment-1394\" class=\"wp-caption-text\">Heilbri\u00f0gur magi. H\u00e9r s\u00e9st hv\u00edti hluti magans (efri sl\u00edmh\u00fa\u00f0) og svo rau\u00f0i hluti magans (ne\u00f0ri sl\u00edmh\u00fa\u00f0) \u00a9\ufe0f\u00dand\u00edna \u00ddr \u00deorgr\u00edmsd\u00f3ttir<\/figcaption><\/figure>\n<p style=\"font-weight: 400;\">Kunn\u00e1ttan kemur h\u00e6gt og r\u00f3lega eftir \u00fev\u00ed sem \u00feekkingin eykst. H\u00e6gt er a\u00f0 gefa hrossum lyf og stundum er \u00fea\u00f0 nau\u00f0synlegt. \u00c9g m\u00e6li samt me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00f3lk taki hrossin inn, heyi \u00feau \u00ed tv\u00e6r vikur \u00e1\u00f0ur en \u00feau fara a\u00f0 eiga eitthva\u00f0 vi\u00f0 \u00feau og gefi svo oftar, nokkrum sinnum \u00e1 dag. \u00dea\u00f0 sem er s\u00e9rstakt vi\u00f0 \u00edslenska hestinn er a\u00f0 \u00fea\u00f0 virtist ekki skipta m\u00e1li \u00fe\u00f3tt \u00feeir f\u00e1i ekki gj\u00f6f \u00ed 16-18 t\u00edma yfir n\u00f3ttina, \u00f3l\u00edkt \u00fev\u00ed sem veldur vandam\u00e1li hj\u00e1 hrossum v\u00ed\u00f0a erlendis. En mestu m\u00e1li skipti hversu oft \u00feeim er gefi\u00f0 \u00e1 daginn.\u201c<\/p>\n<p style=\"font-weight: 400;\">Sj\u00e1lf hefur \u00dand\u00edna s\u00e9\u00f0 mikla breytingu \u00e1 s\u00ednum hrossum eftir a\u00f0 h\u00fan f\u00f3r a\u00f0 gefa \u00feeim 3-4 sinnum \u00e1 dag. \u201e\u00c9g gef \u00feeim \u00e1 morgnana og \u00ed h\u00e1deginu, h\u00e1ra \u00feeim \u00feegar \u00e9g kem upp \u00ed hesth\u00fas seinni partinn og gef svo kv\u00f6ldgj\u00f6f. Hestarnir eru mun s\u00e1ttari \u00feegar \u00e9g fer \u00e1 bak, minni slagsm\u00e1l eru \u00fati \u00ed ger\u00f0i og \u00feeir eru s\u00e1ttari fr\u00e1 h\u00fasi og almennt mun r\u00f3legri.\u201c<\/p>\n<h3>Aldrei \u00e1 a\u00f0 hreyfa hest me\u00f0 t\u00f3man maga<\/h3>\n<p style=\"font-weight: 400;\">Anna\u00f0 vill \u00dand\u00edna leggja \u00e1herslu \u00e1 til \u00feess a\u00f0 reyna a\u00f0 koma \u00ed veg fyrir a\u00f0 hross f\u00e1i magas\u00e1r \u00ed hv\u00edta hluta magans, en \u00fea\u00f0 er a\u00f0 mj\u00f6g sl\u00e6mt er a\u00f0 hreyfa hest me\u00f0 t\u00f3man maga. Magas\u00fdra er salts\u00fdra og h\u00fan ertir. Ef hestur er me\u00f0 t\u00f3man maga og fer hra\u00f0ar en \u00e1 feti slettist magas\u00fdran \u00far rau\u00f0a hlutanum upp \u00e1 hv\u00edta hlutann, sem eins og \u00e1\u00f0ur segir er me\u00f0 mj\u00f6g l\u00edti\u00f0 varnarlag, og brennir sl\u00edmh\u00fa\u00f0ina. \u00deetta getur mj\u00f6g l\u00edklega orsaka\u00f0 magas\u00e1r. \u201eEf \u00fe\u00fa gefur hestinum um \u00fea\u00f0 bil h\u00e1lft k\u00edl\u00f3 af heyi \u00e1\u00f0ur en hann er hreyf\u00f0ur \u00fe\u00e1 ertu b\u00fainn a\u00f0 b\u00faa til svokalla\u00f0a heymottu, \u00e1g\u00e6tt or\u00f0 sem \u00e9g \u00a0bj\u00f3 til. Heyi\u00f0 blandast \u00fe\u00e1 magas\u00fdrunni og stillir hana svol\u00edti\u00f0 af og minni l\u00edkur eru \u00e1 a\u00f0 s\u00fdran slettist upp \u00e1 hv\u00edta lagi\u00f0. \u00dea\u00f0 sem gerist l\u00edka \u00feegar maginn er t\u00f3mur vi\u00f0 \u00fej\u00e1lfun er a\u00f0 s\u00fdrstigi\u00f0 l\u00e6kkar enn frekar og magas\u00fdran ver\u00f0ur enn meira ertandi. \u00c9g m\u00e6li ekki me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hestur s\u00e9 fastandi \u00ed meira en fj\u00f3ra til fimm t\u00edma a\u00f0 degi til.\u201c<\/p>\n<figure id=\"attachment_1395\" aria-describedby=\"caption-attachment-1395\" style=\"width: 300px\" class=\"wp-caption alignleft\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-1395\" src=\"https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2022\/11\/Magasar-3-300x237.jpg\" alt=\"Magas\u00e1r\" width=\"300\" height=\"237\" srcset=\"https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2022\/11\/Magasar-3-300x237.jpg 300w, https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2022\/11\/Magasar-3-696x549.jpg 696w, https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2022\/11\/Magasar-3-532x420.jpg 532w, https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2022\/11\/Magasar-3.jpg 758w\" sizes=\"(max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/><figcaption id=\"caption-attachment-1395\" class=\"wp-caption-text\">Magas\u00e1r \u00ed hv\u00edta hluta magans.<br \/>\u00a9\ufe0f\u00dand\u00edna \u00ddr \u00deorgr\u00edmsd\u00f3ttr<\/figcaption><\/figure>\n<p style=\"font-weight: 400;\">A\u00f0spur\u00f0 um hvernig hey henti hrossunum best segir h\u00fan a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 gott a\u00f0 heyi\u00f0 s\u00e9 gr\u00f3ft. \u00de\u00f3 ekki of gr\u00f3ft \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 \u00fearf a\u00f0 vera g\u00f3\u00f0 n\u00e6ring \u00ed \u00fev\u00ed. En gr\u00f3ft hey eykur tyggingu og \u00fear me\u00f0 munnvatn sem hj\u00e1lpar til vi\u00f0 a\u00f0 vernda magann. \u201e\u00c9g m\u00e6li \u00fe\u00f3 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00f3lk taki heys\u00fdni og l\u00e1ti efnagreina og ef \u00fearf \u00e1 a\u00f0 b\u00e6ta \u00fea\u00f0 upp me\u00f0 steinefnum, snefilefnum og v\u00edtam\u00ednum. Hva\u00f0 var\u00f0ar f\u00f3\u00f0urb\u00e6ti eru sykrur og sterkja \u00e1h\u00e6ttu\u00fe\u00e1ttur. Samanlagt magn af sterkju og sykri \u00e6tti ekki a\u00f0 vera meira en 15-20% \u00ed 1 kg af kraftf\u00f3\u00f0rinu.<\/p>\n<p style=\"font-weight: 400;\">Miklu m\u00e1li skiptir l\u00edka hven\u00e6r kjarnf\u00f3\u00f0ur er gefi\u00f0. H\u00e6tta \u00e1 magas\u00e1ri eykst ef \u00fea\u00f0 er gefi\u00f0 \u00e1 fastandi maga, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00feegar hestur er n\u00fdkomin \u00far krefjandi a\u00f0st\u00e6\u00f0um, til d\u00e6mis keppni. \u00dea\u00f0 er miklu betra fyrir hann a\u00f0 f\u00e1 hey \u00e1\u00f0ur og svo kraftf\u00f3\u00f0ri\u00f0 sitt. Hesturinn \u00fearf n\u00e1tt\u00farlega bara gott hey, steinefni, snefilefni og v\u00edtam\u00ednin s\u00edn.\u201c<\/p>\n<p>Fyrir \u00fe\u00e1 sem hafa \u00e1huga \u00e1 a\u00f0 heyra \u00ed \u00dand\u00ednu \u00ed sambandi vi\u00f0 magaspeglun \u00e1hrossum geta sent henni t\u00f6lvup\u00f3st \u00e1 dyrlaege.ehf@gmail.com.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Magas\u00e1r er mun algengara \u00ed \u00edslenskum hestum en \u00e1\u00f0ur hefur veri\u00f0 tali\u00f0. \u00cd ranns\u00f3kn \u00e1 t\u00ed\u00f0ni magas\u00e1ra \u00ed \u00edslenskum hestum, sem \u00dand\u00edna \u00ddr \u00deorgr\u00edmsd\u00f3ttir d\u00fdral\u00e6knir framkv\u00e6mdi \u00e1samt N\u00f6nnu Luthersson d\u00fdral\u00e6kni, sem stj\u00f3rna\u00f0i ranns\u00f3kninni, og v\u00edsindam\u00f6nnunum Patricia A Harris, Tim Parkins og Euan D. Bennet, voru 71 hross ranns\u00f6ku\u00f0 fr\u00e1 10 b\u00e6jum \u00e14 \u00f3l\u00edkum landssv\u00e6\u00f0um \u00e1 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":1405,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[14,18,15,12],"tags":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1389"}],"collection":[{"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1389"}],"version-history":[{"count":14,"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1389\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1411,"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1389\/revisions\/1411"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/media\/1405"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1389"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1389"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1389"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}