{"id":934,"date":"2019-06-29T17:00:59","date_gmt":"2019-06-29T17:00:59","guid":{"rendered":"http:\/\/hestamennska.is\/?p=934"},"modified":"2021-02-25T12:00:43","modified_gmt":"2021-02-25T12:00:43","slug":"adeins-thyngri-skeifur-eru-betri-fyrir-hestinn-en-ad-safna-hofum","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hestamennska.is\/?p=934","title":{"rendered":"A\u00f0 j\u00e1rna \u00e1 a\u00f0eins \u00feyngri skeifur er betra fyrir hestinn en a\u00f0 safna h\u00f3fum"},"content":{"rendered":"<p><strong>L\u00f6gun h\u00f3fa getur haft miki\u00f0 a\u00f0 segja fyrir ganglag hesta, en ekki s\u00ed\u00f0ur fyrir heilbrig\u00f0i \u00feeirra og endingu. En hva\u00f0 er e\u00f0lileg l\u00f6gun h\u00f3fa?<\/strong><\/p>\n<p>Sigur\u00f0ur Torfi Sigur\u00f0sson j\u00e1rningameistari rannsaka\u00f0i h\u00f3fa rei\u00f0hesta og kynb\u00f3tahrossa \u00ed BS-ritger\u00f0 sinni vi\u00f0 Landb\u00fana\u00f0arh\u00e1sk\u00f3lann \u00e1 Hvanneyri \u00e1ri\u00f0 2011, <a href=\"https:\/\/skemman.is\/bitstream\/1946\/9251\/1\/BS_verkefni_Sigur%C3%B0ur_Torfi_Sigur%C3%B0sson.pdf\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\"><em>H\u00f3far \u00edslenskra hrossa Samanbur\u00f0ur h\u00f3fa rei\u00f0- og kynb\u00f3tahrossa<\/em><\/a>. \u00dear kemur m.a. fram a\u00f0 me\u00f0al framh\u00f3fur \u00edslenskra rei\u00f0hesta er 7,7 sm langur \u00e1 t\u00e1 en 3,03 sm \u00e1 h\u00e6l. Hallinn er 51,15\u00b0 \u00ed t\u00e1 en 47,89\u00b0 \u00ed h\u00e6l. Munurinn \u00e1 h\u00e6l og t\u00e1 er \u00fev\u00ed 3,31\u00b0. Me\u00f0al afturh\u00f3fur er 7,51 sm langur \u00e1 t\u00e1, en 2,60 sm \u00ed h\u00e6l. Hann hallar 51,69\u00b0\u00ed t\u00e1 og 45,75\u00b0\u00ed h\u00e6l.<\/p>\n<p>\u00cd ranns\u00f3kn Sigur\u00f0ar voru ni\u00f0urst\u00f6\u00f0urnar fengnar me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 m\u00e6la 89 rei\u00f0hesta \u00e1 aldrinum \u00feriggja til tuttugu og eins vetra. Hestarnir voru j\u00e1rna\u00f0ir e\u00f0a t\u00e1lga\u00f0ir \u00ed grunnst\u00f6\u00f0u og m\u00e6ldar voru 14 m\u00e6list\u00e6r\u00f0ir, lengd t\u00e1ar og h\u00e6ls, halli t\u00e1ar og h\u00e6ls, breidd h\u00f3fs, lengd h\u00f3fs fr\u00e1 t\u00e1 a\u00f0 h\u00f3ftungu, lengd h\u00f3ftungu \u00e1 fram- og afturh\u00f3fum. \u00dat fr\u00e1 \u00feessum m\u00e6list\u00e6r\u00f0um var reikna\u00f0ur mismunur \u00e1 h\u00f3fhalla og halla h\u00e6ls, ne\u00f0ri lengd h\u00f3fs og mismunur \u00e1 milli t\u00e1lengdar fram- og afturh\u00f3fa.<\/p>\n<p>FEIF, al\u00fej\u00f3\u00f0asamt\u00f6k eigenda \u00edslenskra hesta, styrkti <a href=\"https:\/\/www.feiffengur.com\/documents\/summary_hoofstudy2014.pdf?fbclid=IwAR3uUydDPyumYYfqEEgp-gra_gJ87g4I9BYvzJzm0hBtG2Ya6nqlz9gAtyE\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">ranns\u00f3kn<\/a> sem leidd var af \u00feeim Nina Waldern og Michael Weishaupt og sta\u00f0festi h\u00fan \u00feessar lengdir og st\u00e6r\u00f0ir h\u00f3fa \u00e1 \u00edslenskum hestum. Sumar ranns\u00f3knir benda einnig til a\u00f0 halli h\u00f3fa fari miki\u00f0 eftir umhverfisa\u00f0st\u00e6\u00f0um og \u00fev\u00ed landi sem hestarnir fara um. \u201eBreitt svi\u00f0 \u00e1 h\u00f3fhalla getur \u00fev\u00ed veri\u00f0 e\u00f0lilegt vi\u00f0 \u00e1kve\u00f0nar umhverfisa\u00f0st\u00e6\u00f0ur og breytingar \u00e1 h\u00f3fhalla g\u00e6tu \u00e1tt s\u00e9r sta\u00f0 \u00e1 fremur stuttum t\u00edma. \u00cd samanbur\u00f0i vi\u00f0 ranns\u00f3knir \u2026 [\u00e6ttu] \u00edslenskir hestar sem aldir eru upp \u00ed votlendi a\u00f0 vera me\u00f0 flatari h\u00f3fa en hross alin \u00e1 gr\u00fdttu landi e\u00f0a fjalllendi. Form og v\u00f6xtur h\u00f3fa fer \u00fev\u00ed ekki einungis eftir erf\u00f0a\u00fe\u00e1ttum, heldur einnig umhverfisa\u00f0st\u00e6\u00f0um. Inngrip mannsins me\u00f0 j\u00e1rningum e\u00f0a h\u00f3fsnyrtingu getur einnig haft \u00e1hrif \u00e1 form og halla h\u00f3fa\u2026,\u201c segir Sigur\u00f0ur Torfi \u00ed ranns\u00f3kn sinni.<\/p>\n<figure id=\"attachment_938\" aria-describedby=\"caption-attachment-938\" style=\"width: 674px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><a href=\"https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2019\/06\/fullsizeoutput_4a4.jpeg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"wp-image-938 \" src=\"https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2019\/06\/fullsizeoutput_4a4.jpeg\" alt=\"\" width=\"674\" height=\"814\" srcset=\"https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2019\/06\/fullsizeoutput_4a4.jpeg 613w, https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2019\/06\/fullsizeoutput_4a4-249x300.jpeg 249w, https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2019\/06\/fullsizeoutput_4a4-348x420.jpeg 348w\" sizes=\"(max-width: 674px) 100vw, 674px\" \/><\/a><figcaption id=\"caption-attachment-938\" class=\"wp-caption-text\">J\u00e1rna \u00e1 hesta reglulega og klippa h\u00f3fa \u00ed e\u00f0lilega h\u00f3fst\u00f6\u00f0u, grunnst\u00f6\u00f0u h\u00f3fs. \u00a9Gunnar Halld\u00f3rsson<\/figcaption><\/figure>\n<p>\u00cd samtali vi\u00f0 <em>Hestamennska<\/em>\u00a0sag\u00f0i Sigur\u00f0ur Torfi a\u00f0 \u00fe\u00f3 ranns\u00f3knin s\u00e9 nokkurra \u00e1ra g\u00f6mul s\u00e9 \u00fea\u00f0 sem h\u00e9r a\u00f0 ofan komi fram enn gott og gilt. En teki\u00f0 hefur veri\u00f0 \u00e1 \u00fdmsum m\u00e1lum \u00ed sambandi vi\u00f0 h\u00f3fa \u00ed kynb\u00f3tad\u00f3mi fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 ritger\u00f0 hans var birt.<\/p>\n<p><strong>En hva\u00f0a \u00e1hrif hefur \u00fea\u00f0 a\u00f0 l\u00e1ta h\u00f3finn vaxa?<\/strong><\/p>\n<p>Lengri t\u00e1 eykur \u00feyngd h\u00f3fsins og b\u00fdr til meira vogarafl \u00e1 f\u00e6tinum. Eftir \u00fev\u00ed sem h\u00f3fur er lengri veltur hann h\u00e6gar yfir, en skrefferillinn ver\u00f0ur hra\u00f0ari. Skrefferill er s\u00fa atbur\u00f0arr\u00e1s sem \u00e1 s\u00e9r sta\u00f0 eftir a\u00f0 t\u00e1in veltur yfir og h\u00f3fur lyftist fr\u00e1 j\u00f6r\u00f0u og \u00fear til hann lendir aftur og tekur vi\u00f0 \u00feyngd hestsins. Vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 skrefferillinn ver\u00f0ur hra\u00f0ari \u00fe\u00e1 eykst f\u00f3tabur\u00f0ur og skreflengd ver\u00f0ur meiri. \u00deetta \u00feykja j\u00e1kv\u00e6\u00f0ir eiginleikar \u00ed kynb\u00f3tad\u00f3mi og telur Sigur\u00f0ur Torfi a\u00f0 ef merkt er vi\u00f0 \u00feessa j\u00e1kv\u00e6\u00f0u eiginleika hj\u00e1 kynb\u00f3tad\u00f3murum s\u00e9u l\u00edkur \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00f3far \u00feeirra hrossa s\u00e9u langir. Samkv\u00e6mt reynslu hans sem j\u00e1rningamanns eru m\u00f6rg hross mj\u00f6g vi\u00f0kv\u00e6m fyrir litlum breytingum \u00ed h\u00f3flengd og ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur ranns\u00f3knarinnar benda til a\u00f0 h\u00f3flengd s\u00e9 miki\u00f0 notu\u00f0 til a\u00f0 lei\u00f0r\u00e9tta gangtegundir og auka f\u00f3tabur\u00f0 og skreflengd.<\/p>\n<p>Breytingar \u00e1 h\u00f3flagi getur haft \u00fe\u00e6r aflei\u00f0ingar a\u00f0 \u00e1lag eykst \u00e1 h\u00f3fa og f\u00e6tur hrossa. Einnig \u00feegar halli t\u00e1l\u00ednu ver\u00f0ur minni en halli h\u00f3fbeins, \u00fe.e. \u00feegar h\u00e6lar eru haf\u00f0ir of h\u00e1ir. \u00de\u00e1 myndast \u00e1lag \u00e1 hv\u00edtu l\u00ednuna \u00feannig a\u00f0 kvikuslit getur myndast. Vi\u00f0 \u00feess h\u00e1ttar kvikuslit getur h\u00f3fveggur brotna\u00f0 fr\u00e1 h\u00f3fkviku, e\u00f0a \u00f3hreinindi borist upp me\u00f0 hv\u00edtu l\u00ednu, inn \u00ed h\u00f3fkviku og jafnvel valdi\u00f0 s\u00fdkingu sem leitt getur til h\u00f3fsperru. Of h\u00e1ir h\u00e6lar valda \u00e1lagi og \u00fer\u00fdstingi \u00ed aftanver\u00f0u h\u00f3fhvarfi. Meiri hreyfing ver\u00f0ur \u00e1 h\u00e6lsv\u00e6\u00f0inu, en ef hestar eru j\u00e1rna\u00f0ir \u00ed grunnst\u00f6\u00f0u, \u00feannig a\u00f0 sveigja \u00ed \u00fe\u00f3funum ver\u00f0ur meiri. Vi\u00f0 \u00feessar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur getur myndast \u00fe\u00f3faskekkja, auk \u00feess sem e\u00f0lileg h\u00f3fvirkni er hindru\u00f0 og mun meiri \u00fer\u00fdstingur ver\u00f0ur \u00e1 h\u00e6lsv\u00e6\u00f0i\u00f0 vi\u00f0 hreyfingar hestsins en e\u00f0lilegt er.<\/p>\n<p><strong>Sigur\u00f0ur Torfi var spur\u00f0ur a\u00f0 \u00fev\u00ed hvort f\u00f3lk v\u00e6ri a\u00f0 safna h\u00f3fum \u00e1 rei\u00f0hestum s\u00ednum til \u00feess a\u00f0 n\u00e1 fram auknum f\u00f3tabur\u00f0i og lei\u00f0r\u00e9tta ganglag.<\/strong><\/p>\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 kemur alveg fyrir a\u00f0 venjulegt \u00fatrei\u00f0af\u00f3lk safni h\u00f3fum \u00e1 hestum s\u00ednum, oft er \u00fea\u00f0 samkv\u00e6mt r\u00e1\u00f0leggingum \u201ereyndra knapa\u201c, \u00a0en \u00e9g hef l\u00edka heyrt sl\u00edkar r\u00e1\u00f0leggingar fr\u00e1 rei\u00f0kennara. \u00deetta er samt \u00e1 undanhaldi. \u00c9g held a\u00f0 meira hafi veri\u00f0 um \u00feetta \u00e1\u00f0ur fyrir 15 til 20 \u00e1rum,\u201c sag\u00f0i hann.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 sem f\u00f3lk \u00feurfi a\u00f0 hafa \u00ed huga, segir hann, \u00a0er a\u00f0 j\u00e1rna reglulega og klippa hesta s\u00edna \u00ed e\u00f0lilega h\u00f3fst\u00f6\u00f0u, grunnst\u00f6\u00f0u h\u00f3fs. \u00dea\u00f0 er l\u00edka \u00e1g\u00e6tt a\u00f0 hafa \u00ed huga a\u00f0 h\u00f3fs\u00f6fnun hefur mismunandi \u00e1hrif \u00e1 hesta. \u201eStundum hj\u00e1lpar a\u00f0 safna a\u00f0eins h\u00f3fum til a\u00f0 lei\u00f0r\u00e9tta ganglag en yfirleitt vinnur \u00fea\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti hestinum. Hver millimetri sem b\u00e6tist vi\u00f0 eykur \u00e1lag \u00e1 f\u00e6tur og hesturinn \u00fearf a\u00f0 breyta l\u00edkamsbeitingu sinni og hann fer jafnvel a\u00f0 leggjast \u00e1 taum. H\u00f3fs\u00f6fnun \u00e1 \u00fear af lei\u00f0andi alltaf a\u00f0 vera seinni kostur og \u00fe\u00e1 til skamms t\u00edma. H\u00fan er ekki framt\u00ed\u00f0arlausn. Me\u00f0 skrokkst\u00edfa hesta virkar t.d. yfirleitt mun betur a\u00f0 nota heldur \u00feyngri skeifur en safna h\u00f3fum\u201c.<\/p>\n<figure id=\"attachment_939\" aria-describedby=\"caption-attachment-939\" style=\"width: 696px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><a href=\"https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2019\/06\/65709512_200389634237546_3889583058260590592_n-1.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"wp-image-939 size-large\" src=\"https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2019\/06\/65709512_200389634237546_3889583058260590592_n-1-768x1024.jpg\" alt=\"\" width=\"696\" height=\"928\" srcset=\"https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2019\/06\/65709512_200389634237546_3889583058260590592_n-1-768x1024.jpg 768w, https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2019\/06\/65709512_200389634237546_3889583058260590592_n-1-225x300.jpg 225w, https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2019\/06\/65709512_200389634237546_3889583058260590592_n-1-696x928.jpg 696w, https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2019\/06\/65709512_200389634237546_3889583058260590592_n-1-1068x1424.jpg 1068w, https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2019\/06\/65709512_200389634237546_3889583058260590592_n-1-315x420.jpg 315w, https:\/\/hestamennska.is\/wp-content\/uploads\/2019\/06\/65709512_200389634237546_3889583058260590592_n-1.jpg 1536w\" sizes=\"(max-width: 696px) 100vw, 696px\" \/><\/a><figcaption id=\"caption-attachment-939\" class=\"wp-caption-text\">Langur h\u00f3fur klipptur. Hver millimetri sem b\u00e6tist vi\u00f0 eykur \u00e1lag \u00e1 f\u00e6tur hestsins.<\/figcaption><\/figure>\n<p>Sigur\u00f0ur segir a\u00f0 \u00fea\u00f0 g\u00e6ti allskonar misskilnings \u00ed \u00feessum efnum. \u201eSumir telja a\u00f0 hestarnir s\u00ednir ver\u00f0i s\u00e1rf\u00e6ttir ef \u00feeir eru klipptir \u00ed grunnst\u00f6\u00f0u og telja a\u00f0 t.d. \u00ed hestafer\u00f0um s\u00e9 betra a\u00f0 vera me\u00f0 a\u00f0eins vaxna h\u00f3fa. \u00dea\u00f0 er n\u00e1tt\u00farulega t\u00f3m \u00fev\u00e6la og verra \u00ed alla sta\u00f0i og miki\u00f0 nota\u00f0ir hestar \u00e6ttu aldrei a\u00f0 vera me\u00f0 langa h\u00f3fa. Einnig styrkist h\u00f3fbotninn og vex meira vi\u00f0 \u00f6rvun og \u00e1 e\u00f0lilega klipptum h\u00f3fi er n\u00faningur og vi\u00f0koma h\u00f3fbotns vi\u00f0 j\u00f6r\u00f0u l\u00edkari \u00fev\u00ed sem e\u00f0lilegt er hj\u00e1 hestum vi\u00f0 n\u00e1tt\u00farulegar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur og \u00fear af lei\u00f0andi meiri v\u00f6xtur og endurn\u00fdjun \u00e1 h\u00f3fefni. Hins vegar er um a\u00f0 gera a\u00f0 nota botna og g\u00f3\u00f0 fylliefni ef menn telja a\u00f0 hestarnir geti or\u00f0i\u00f0 s\u00e1rf\u00e6ttir t.d. \u00ed erfi\u00f0um hestafer\u00f0um. Einnig er \u00fea\u00f0 algengt a\u00f0 f\u00f3lk telji e\u00f0lilegt a\u00f0 h\u00f3far \u201est\u00e6kki\u201c \u00feegar l\u00ed\u00f0ur \u00e1 vetur og vor, en \u00fea\u00f0 er ekki r\u00e9tt. H\u00f3far geta a\u00f0eins breyst \u00ed formi og oft \u00fearf a\u00f0 st\u00e6kka e\u00f0a minka skeifur en grunneiningin st\u00e6kkar ekki.\u201c<\/p>\n<p>A\u00f0 lokum vill Sigur\u00f0ur Torfi benda hestaeigendum \u00e1 eftirfarandi: \u201eHestaeigendur og j\u00e1rningamenn \u00e6ttu alltaf a\u00f0 r\u00e1\u00f0f\u00e6ra sig um hvernig \u00e1 a\u00f0 j\u00e1rna. Eigandinn hefur alltaf uppl\u00fdsingar sem j\u00e1rningama\u00f0urinn veit ekki af og oft hugmyndir sem vert er a\u00f0 \u00edhuga. Eigandinn \u00e1 einnig a\u00f0 gera \u00fe\u00e1 kr\u00f6fu \u00e1 j\u00e1rningamanninn a\u00f0 hann hafi \u00fe\u00e1 \u00feekkingu sem \u00fearf til a\u00f0 j\u00e1rna hestinn eftir \u00fe\u00f6rfum hestsins. J\u00e1rningama\u00f0urinn m\u00e1 ekki vera yfir \u00fea\u00f0 hafinn a\u00f0 hlusta \u00e1 hugmyndir e\u00f0a \u00f3skir eigandans. J\u00e1rningama\u00f0urinn \u00e1 l\u00edka a\u00f0 geta f\u00e6rt r\u00f6k fyrir m\u00e1li s\u00ednu ef hann telur eigandann vera me\u00f0 rangar hugmyndir og \u00f3raunh\u00e6far kr\u00f6fur og ef hann er ekki viss \u00e1 hann a\u00f0 afla s\u00e9r \u00feekkingar um \u00fea\u00f0. \u00dea\u00f0 er til fullt af efni \u00e1 netinu og s\u00ed\u00f0an er ekkert a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 spyrja a\u00f0ra reyndari j\u00e1rningamenn r\u00e1\u00f0a.\u201c<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>L\u00f6gun h\u00f3fa getur haft miki\u00f0 a\u00f0 segja fyrir ganglag hesta, en ekki s\u00ed\u00f0ur fyrir heilbrig\u00f0i \u00feeirra og endingu. En hva\u00f0 er e\u00f0lileg l\u00f6gun h\u00f3fa? Sigur\u00f0ur Torfi Sigur\u00f0sson j\u00e1rningameistari rannsaka\u00f0i h\u00f3fa rei\u00f0hesta og kynb\u00f3tahrossa \u00ed BS-ritger\u00f0 sinni vi\u00f0 Landb\u00fana\u00f0arh\u00e1sk\u00f3lann \u00e1 Hvanneyri \u00e1ri\u00f0 2011, H\u00f3far \u00edslenskra hrossa Samanbur\u00f0ur h\u00f3fa rei\u00f0- og kynb\u00f3tahrossa. \u00dear kemur m.a. fram a\u00f0 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":937,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[18,15,12],"tags":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/934"}],"collection":[{"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=934"}],"version-history":[{"count":10,"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/934\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":950,"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/934\/revisions\/950"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/media\/937"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=934"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=934"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hestamennska.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=934"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}